Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Eitt ár er liðið frá upphafi tilraunaverkefnis Norðurlandanna um sameiginlegar enskar lyfjapakkningar ákveðinna sjúkrahússlyfja

20. febrúar 2026

Verkefnið hefur farið vel af stað og heldur áfram í þróun. Umfangið hefur vaxið og sífellt fleiri lyf eru tekin inn

Þann 1. janúar 2025 hófu Norðurlöndin tilraunaverkefni um sameiginlegar lyfjapakkningar á ensku fyrir sjúkrastofnanir. Markmiðið er að bæta aðgengi að mikilvægum, en lítið notuðum lyfjum á sjúkrastofnunum í Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð. Á árinu sem hefur liðið frá upphafi verkefnisins hefur það vaxið og heldur áfram í þróun sem er mikilvægt, sérstaklega fyrir smærri þjóðir.

Verkefnið felur í sér að heimilt er að markaðssetja tiltekin sjúkrahúslyf í pakkningum þar sem upplýsingar eru eingöngu á ensku. Heilbrigðisstarfsfólk hefur þó aðgang að uppfærðum rafrænum fylgiseðlum á sínu móðurmáli.

Þann 19. febrúar s.l. höfðu 19 lyf verið samþykkt til notkunar í sameiginlegum pakkningum með enskum texta í tveimur eða fleiri þátttökulöndum.

Ánægja er með jákvæð viðbrögð markaðsleyfishafa og framleiðenda. Þetta er mikilvægt skref til að tryggja aðgang að nauðsynlegum lyfjum.

Stækkandi listi virkra efna

Við kynningu verkefnisins í janúar 2025 innihélt listinn 20 virk efni. Hann hefur sífellt verið endurbættur og telur nú 49 virk efni eða samsetningar virkra efna.

Lyfjayfirvöld á Norðurlöndum fylgjast reglulega með stöðu markaðarins og meta hvort þörf sé á endurskoðun listans. Síðastliðið haust var til dæmis kynnt útvíkkun, eins og áður hefur verið fjallað um, sem heimilar að sameiginlegar Norðurlandapakkningar á ensku séu sameinaðar öðru evrópumáli fyrir lyf sem hlotið hafa markaðsleyfi í gegnum miðlægt skráningarferli Lyfjastofnunar Evrópu (EMA).

Umsóknir óskast

Markaðsleyfishafar þeirra lyfja sem tilgreind hafa verið sem hluti af verkefninu, eru hvattir til að sækja um þátttöku, og auka þannig líkur á meira framboði mikilvægra sjúkrahúslyfja á Norðurlöndum.

Frekari upplýsingar

Nánari upplýsingar um umsóknarferlið er að finna á vef Lyfjastofnunar. Ef einhverjar spurningar vakna er hægt að hafa samband:

Lyfjastofnun

Heim­il­is­fang

Lyfjastofnun

Vínlandsleið 14

113 Reykjavík

Opnun­ar­tími

Móttaka

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. Lokað

Þjónustuver

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. 9:00 - 12:00