Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

DHPC bréf – Innúðatæki með salbútamóli (Ventoline)

29. janúar 2026

Áhersla á upplýsingar um fjölda skammta í innúðatæki með salbútmóli samkvæmt áletrun

GlaxoSmithKline Pharma A/S í samráði við Lyfjastofnun vill koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri:

  • Innúðatækið inniheldur aðeins salbútamól sem nægir í 200 skammta (úðaskammta). Eftir 200 skammta (úðaskammta) kemur ennþá úði úr innúðatækinu en hann inniheldur ekki ávísaðan skammt af salbútamóli.

  • Ekki er mælt með að nota aðferðir eins og að hrista, vigta eða að setja innúðatækið á kaf í vatn til þess að ákvarða með nákvæmni hvort búið sé að klára ávísaðan skammt af salbútamóli úr tækinu.

  • Í samræmi við þetta skal íhuga að skrá niður fjölda skammta (úðaskammta) sem sjúklingurinn fær til að koma í veg fyrir að tómt innúðatæki sé notað óafvitandi.

  • Mælt er með að hafa tiltækt aukainnúðatæki. Ef sjúklingurinn er með fleiri en eitt innúðatæki er mælt með því að skrá sérstaklega upplýsingar um notkun hvers tækis fyrir sig.

Nauðsynleg viðbrögð heilbrigðisstarfsmanna

Heilbrigðisstarfsmenn skulu leggja áherslu á þessar upplýsingar við sjúklinga. Bréfið er sent til barnalækna, lungnalækna, heilsugæslulækna, lungnadeilda, apóteka, sjúkrahúsapóteka og heilsugæsla. Viðtakendur eru hvattir til að láta aðra heilbrigðisstarfsmenn vita um innihald bréfsins eftir því sem við á.

Tilkynning aukaverkana

Heilbrigðisstarfsmenn eru minntir á skyldur sínar til að tilkynna allar aukaverkanir sem grunur er um að tengist lyfinu. Hægt er að tilkynna til Lyfjastofnunar eða í gegnum eyðublað (Tilkynning um aukaverkun) sem er að finna í Sögu.

Einnig má tilkynna aukaverkanir til fulltrúa markaðsleyfishafa á Íslandi, Vistor hf. á netfangið safety@vistor.is eða í síma 535-7000.

Lyfjastofnun

Heim­il­is­fang

Lyfjastofnun

Vínlandsleið 14

113 Reykjavík

Opnun­ar­tími

Móttaka

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. Lokað

Þjónustuver

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. 9:00 - 12:00