Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Þessi frétt er meira en árs gömul

DHPC bréf – Alimemazin Evolan 40 mg/ml dropar

27. desember 2024

Hætta á ofskömmtun hjá börnum yngri en 3 ára. Ekki er víst að skömmtunarbúnaður sem fylgir lyfinu sé kvarðaður til að gefa nákvæmlega ávísaðan skammt.

Í samráði við Lyfjastofnun upplýsir Evolan Pharma AB um eftirfarandi:

  • Alimemazin Evolan 40 mg/ml, dropar til inntöku, lausn er ætlað fullorðnum og börnum 3 ára og eldri sem lyfjaforgjöf og til skammtímameðferðar við kláða og ofnæmi

  • Hætta er á ofskömmtun hjá börnum yngri en 3 ára vegna mikilla slævandi áhrifaog vegna þess á ekki að nota lyfið handa þessum aldurshóp.

  • Skammtaráðleggingar eru mismunandi eftir aldri og ábendingu og eru sérstakarleiðbeiningar annars vegar um lyfjaforgjöf og hins vegar um meðferð við kláðaog ofnæmi.

  • Umönnunaraðilar skulu tryggja að Alimemazin Evolan sé geymt þar sem börn náekki til. Ekki er víst að skömmtunarbúnaður sem fylgir lyfinu sé kvarðaður til aðgefa nákvæmlega ávísaðan skammt.

  • Ráðleggja á umönnunaraðilum að lesa leiðbeiningarnar í fylgiseðlinum umhvernig hægt sé að greina ummerki og einkenni ofskömmtunar og hvað eigi aðgera í slíkum tilvikum.

Bréfið er sent á barnalækna, heimilislækna, klíniska lyfjafræðinga og lyfsöluleyfishafa apóteka.Viðtakendur þessa bréfs eru hvattir til að upplýsa annað heilbrigðisstarfsfólk um innihald þesseftir því sem við á.

Mikilvægi aukaverkanatilkynninga Eftir að lyf hefur fengið markaðsleyfi er mikilvægt að tilkynna aukaverkanir sem grunur er um að tengist því. Þannig er hægt að fylgjast stöðugt með sambandinu milli ávinnings og áhættu af notkun lyfsins. Vinsamlega tilkynnið allar upplýsingar sem tengjast: aukaverkunum, ofskömmtun, mistökum við lyfjagjöf og notkun utan ábendingar (notkun alimemazins við ósamþykktum ábendingum) Heilbrigðisstarfsmenn eru hvattir til að tilkynna allar aukaverkanir sem grunur er um að tengist lyfinu til Lyfjastofnunar.

Nánari upplýsingar má finna í bréfinu sjálfu.

Lyfjastofnun

Heim­il­is­fang

Lyfjastofnun

Vínlandsleið 14

113 Reykjavík

Opnun­ar­tími

Móttaka

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. Lokað

Þjónustuver

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. 9:00 - 12:00