Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Þessi frétt er meira en árs gömul

CHMP – júlí 2024

4. september 2024

Sérfræðinganefnd Lyfjastofnunar Evrópu (EMA) um lyf fyrir menn (CHMP) hélt fund dagana 22.-25. júlí sl.

Mælt var með að 14 lyf fengju markaðsleyfi, þar á meðal Vyloy - lyf við magakrabbameini, Eksunbi – lyf við sóra og öðrum sjálfsofnæmissjúkdómum, Yuvanci – lyf við háþrýstingi í lungnaslagæð, og Vevizye, lyf við alvarlegum augnþurrki.

Eitt lyf hlaut neikvæða umsögn CHMP, Alzheimerlyfið Leqembi . Hins vegar hefur verið óskað eftir því að sérfræðinganefndin taki lyfið til endurmats og mun það verða gert.

Þá voru einnig samþykktar viðbótarábendingar fyrir ellefu lyf.