Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Þessi frétt er meira en árs gömul

Breyttar áherslur við símsvörun frá 17. janúar

11. janúar 2024

Áríðandi erindum forgangsraðað

Frá og með 17. janúar verður tekið upp nýtt verklag við símsvörun hjá Lyfjastofnun. Horfið verður frá hefðbundinni símsvörun og í staðinn verður hægt að senda inn beiðni um símtal með tvennskonar hætti. Annars vegar í gegnum “hafa samband” form á vef stofnunarinnar og hins vegar með því að lesa inn talskilaboð á símsvara. Eftir sem áður verður hægt að spjalla við starfsfólk Lyfjastofnunar í netspjallinu á milli klukkan 9-15 á virkum dögum.

Skjót afgreiðsla grundvöllur skilvirkni

Kapp verður lagt á að forgangsraða áríðandi erindum en þó kann einhverjum erindum að vera svarað skriflega ef þau eru þess eðlis.Hringt er í þá sem óska símtals, alla virka daga milli klukkan 9:00-10:00 og 14:00-15:00. Forgang hafa símtalsbeiðnir frá fyrirtækjum sem tengjast lyfjum og lækningatækjum, og frá heilbrigðisstarfsfólki og starfsfólki apóteka.

Nákvæmni auðveldar afgreiðslu

Viðskiptavinir eru beðnir um að greina frá erindi sínu með nákvæmum hætti til þess að auðvelda flokkun, forgangsröðun og svörun beiðna. Það eykur skilvirkni og getur stytt svartíma.

Lyfjastofnun

Heim­il­is­fang

Lyfjastofnun

Vínlandsleið 14

113 Reykjavík

Opnun­ar­tími

Móttaka

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. Lokað

Þjónustuver

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. 9:00 - 12:00