Aukaverkanir – ekki hunsa þær, tilkynntu þær
2. nóvember 2026
Í dag hófst árlega alþjóðlega átakið #MedsafetyWeek en tilgangur þess er að vekja athygli á mikilvægi þess að tilkynna aukaverkanir af völdum lyfja

Samkvæmt Uppsala Monitoring Centre sem stendur fyrir átakinu í nóvemer á hverju ári er undir 10 % aukaverkana tilkynnt. Því er full ástæða til að minna á hversu mikilvægt er að læra að þekkja aukaverkanir og tilkynna þær. Þetta á við um lyfjanotendur, aðstandendur og heilbrigðisstarfsfólk.
Lykilskilaboð herferðarinnar
Heilbrigðisstarfsfólk er minnt á að mikilvægt er að eiga samtal við sjúklinga, forráðamenn eða umönnunaraðila til að bera kennsl á áhyggjur sem kunna að vakna. Þeir sem standa að meðferð annara þurfa að vera vakandi fyrir mögulegum aukaverkunum á öllum stigum meðferðar og tilkynna þær sem fyrst. Ekki tefja það – hver tilkynning hjálpar til við að afla upplýsinga um öryggi lyfja.
Lyfjanotendur þurfa svo að hafa í huga að aukaverkanir geta verið alls konar. Það þarf að læra að þekkja þær og hvar rétt er að tilkynna þær. Aldrei ætti að hunsa grun um aukaverkanir heldur tilkynna þær og hjálpa til við að bæta öryggi lyfja.
Hægt er að tilkynna aukaverkanir á vef Lyfjastofnunar. Ekki þarf að vera um staðfesta aukaverkun að ræða, það er nóg að það sé grunur um að aukaverkun fylgi lyfjanotkun til að tilkynna.
