Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Ársskýrsla Lyfjastofnunar

23. mars 2026

Ársskýrsla Lyfjastofnunar árið 2025 er komin út

Í ársskýrslunni er m.a. að finna upplýsingar um lykiltölur ársins 2025.

Á árinu 2025:

  • 56 ný lyf voru markaðssett

  • 601 markaðsleyfi var útgefið

  • 326 tilkynningar bárust vegna gruns um aukaverkanir

  • 1.585 tilkynningar bárust um lyfjaskort

  • Lyfjastofnun tók að sér 89 vísindaráðgjafarverkefni, þar af 88 á vegum Lyfjastofnunar Evrópu

  • eftirlitsþegar stofnunarinnar voru 580 talsins

  • helstu verkefni tengd lækningatækjum voru 562

Í lok árs 2025:

  • 7.832 lyf voru með markaðsleyfi á Íslandi og þar af 2.884 markaðssett

  • 74 apótek voru starfandi hér á landi auk sjúkrahússapóteks Landspítalans, 25 lyfjaútibú og 4 lyfsölur heilsugæslustöðva

  • 5.496 vörunúmer voru í lyfjaverðskrá, þar af 3.728 markaðssett