Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Árleg inflúensubólusetning – upplýsingar fyrir almenning

8. október 2025

Notast verður við bóluefnið Vaxigrip og verða 90.000 skammtar tilbúnir til dreifingar þann 9. október nk.

Bólusetning gegn árlegri inflúensu mun hefjast á hefðbundnum tíma hérlendis en búist er við að bólusetning forgangshópa geti hafist um allt land í byrjun október. Þetta kemur fram í tilkynningu landlæknisembættisins.

Allar ákvarðanir um framkvæmd og fyrirkomulag bólusetninga er í höndum sóttvarnalæknis sem hefur mælst til að ákveðnir áhættuhópar njóti forgangs við inflúensubólusetningu:

  • Allir einstaklingar 60 ára og eldri.

  • Öll börn fædd 1.1.2021 - 30.6.2025, sem hafa náð 6 mánaða aldri þegar bólusett er.

  • Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, offitu, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.

  • Barnshafandi konur.

  • Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.

  • Fólk í starfstengdri áhættu vegna samsmits árlegrar inflúensu og fuglainflúensu

Upplýsingar um bóluefnið sem bólusett verður með

Veturinn 2025-2026 verður notast við Vaxigriptil bólusetningar gegn árlegri inflúensu skv. ákvörðun sóttvarnalæknis. Sóttvarnalæknir hefur gert samning við Vistor um kaup á 90.000 skömmtum fyrir veturinn. Vaxigrip er eitt af þremur inflúensubóluefnum sem eru á markaði á Íslandi, hin eru Influvactetraog VaxigripTetra.

Veirustofnar í Vaxigrip

  • A/Victoria/4897/2022 (H1N1) pdm09 - líkur stofn

  • A/Darwin/9/2021 (H3N2) - líkur stofn

  • B/Austria/1359417/2021 - líkur stofn

Fullt heiti

Vaxigrip15 míkróg Stungulyf, dreifa í áfylltri sprautu

ATC flokkur

J07BB02

Innihaldsefni

Inflúensuveira (deydd, klofin)

Lyfjaform

Stungulyf, dreifa í áfylltri sprautu

Íkomuleið

Til notkunar í vöðva

Aldurshópur

Frá 6 mánaða aldri

Bóluefnið er ræktað í frjóvguðum hænueggjum úr heilbrigðum hænsnahópum

Skammtar bóluefnisins

Vaxigrip

Fullorðnir

Einn 0,5 ml skammtur

Börn 6 mánaða til 17 ára að aldri

Einn 0,5 ml skammtur

Börn yngri en 9 ára að aldri, sem ekki hafa verið bólusett áður

Gefa annan 0,5 ml skammt eftir 4 vikur

Nánari upplýsingar um Vaxigrip fyrir bólusetta er að finna í fylgiseðliog upplýsingar fyrir heilbrigðisstarfsfólk er að finna í samantekt á eiginleikum lyfsins.

Lyfjastofnun

Heim­il­is­fang

Lyfjastofnun

Vínlandsleið 14

113 Reykjavík

Opnun­ar­tími

Móttaka

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. Lokað

Þjónustuver

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. 9:00 - 12:00