Þessi frétt er meira en árs gömul
Áhugasamir hvattir til að senda inn umsóknir um markaðsleyfi
10. janúar 2025
DC-ferlar með Ísland sem umsjónarland (RMS)

Lyfjastofnun tekur að sér að vera umsjónarland (Reference Member State) í svokölluðum DC-ferlum. Áhugasamir eru hvattir til að senda inn umsókn.
Búið er að fylla flest pláss árið 2025. Næsta úthlutun plássa sem losna verður í lok fyrsta ársfjórðungs 2025. Einnig þarf að sækja um pláss fyrir umsókn um landsmarkaðsleyfi.
Vinsamlegast fyllið út eyðublaðiðog sendið með tölvupósti til ima@ima.is.
