Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Vísindavaka Rannís - 20 ára afmæli

27. september 2025

12:00 til 17:00

Laugardalshöll

Vísindavaka Rannís verður haldin laugardaginn 27. september n.k. í Laugardagshöll og er von á góðum gestum í tilefni 20 ára afmælis hátíðarinnar.

Landspítali, sem ein af öflugustu vísindastofnunum landsins, tekur þátt og að sjálfsögðu viljum við hvetja sem flesta starfsmenn að mæta með eða jafnvel án barna og kynnast vísindum á lifandi og skemmtilegan hátt.

Vísindavaka er sannkölluð uppskeruhátíð, vísindanna á Íslandi, þar sem gestir kynna sér vísindin á lifandi hátt og eiga í beinu samtali við rannsakendur og vísindafólk frá háskólum, stofnunum og fyrirtækjum í íslensku vísindasamfélagi.

Dagskráin hefst klukkan 12 og verður sýningarsvæði Vísindavöku opið til klukkan 17

Á Vísindavöku er hægt að prófa ýmis tæki og tól sem vísindafólk vinnur með í sínu daglega starfi og einnig verða fjölmörg tækifæri til að prófa sjálf hvernig vísindi og nýsköpun virka.

Vísindavaka er opin öllum, ungum sem öldnum. Aðgangur er ókeypis.

Nánar um Dagskrá Vísindavöku