Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Nýr Landspítali - Hvað er framundan?

30. september 2026

Hótel Reykjavík Askja

Fræðsludagur í boði Fagráðs Landspítala

Á málþinginu verður farið yfir stöðu verkefnisins, framtíðarsýn og þau tækifæri sem nýr spítali mun skapa fyrir starfsfólk og sjúklinga. Markmiðið er að veita skýrar upplýsingar, svara spurningum og efla tilhlökkun fyrir þeim breytingum sem fram undan eru.

Fundarstjori: Andri Ólafsson, samskiptastjóri Landspítala

Við hvetjum allt starfsfólk til að mæta og taka þátt í samtalinu um framtíð vinnustaðarins okkar.

Dagskrá:

12:00 Húsið opnar

12:30 Ávarp forstjóra - Runólfur Pálsson

12:40 Hlutverk Hringbrautarverkefnis í uppbyggingu spítalans - Lilja Stefánsdóttir

12:50 Sameinuð bráðaþjónusta í meðferðakjarna. Í hverju felast tækifærin? - Sólrún Rúnarsdóttir

13:00 Tækifæri og áskoranir við hönnun gjörgæslu- og skurðstofuhæðar - Sigurbergur Kárason

13:10 Frá fortíð til framtíðar. Umbreyting á lyfjaþjónustu á Landspítala - Karen Lekve

13:20 Rannsóknahús - Sameining rannsóknaþjónustu undir eitt þak - Kristín Jónsdóttir

13:40 Pallborðsumræður - Starfsfólk Landspítala

14:10 Kaffipása

14:30 Landspítali á tímum umbreytinga - hvernig vinnustað viljum við? - Ólafur Baldursson

15:00 Pallborðsumræður - Fyrirlesarar: Runólfur Pálsson, Lilja Stefánsdóttir, Ólafur Baldursson

15:30 Lokaorð - Andri Ólafsson

Léttar veitingar í boði.