Langvinn einkenni Covid
31. október 2025
11:30 til 13:00
Veröld, hús Vigdísar

Annar fundur í fundaröðinni Heilsan okkar haustið 2025 fer fram í Veröld, húsi Vigdísar 31. október kl. 11:30 til 13:00
Markmið fundarins er að veita heildstæða yfirsýn yfir langvinn einkenni covid frá mörgum sjónarhornum.
Umsjón og ritstjórn: Jóhanna E. Torfadóttir
Fundarstjóri: Guðrún Asperlund, sóttvarnarlæknir
Hlekkur á beint streymi frá fundinum: https://vimeo.com/event/5472609
Dagskrá
Friðbjörn Sigurðsson, læknir –
Í ljósi sögunnar - átti langvinnt Covid að koma á óvart?
Ingibjörg Magnúsdóttir, doktorsnemi í lýðheilsuvísindum –
Langvinn andleg, líkamleg og vitræn einkenni COVID: Rannsóknir í alþjóðlega COVIDMENT samstarfinu
Karl Kristjánsson, yfirlæknir Reykjalundi –
Langvinn einkenni eftir Covid, er ávinningur af endurhæfingu?
Sigurveig Þ. Sigurðardóttir, yfirlæknir ofnæmislækninga á Landspítala –
Ónæmiskerfið og langvinn einkenni Covid
Steinunn Gestsdóttir, prófessor í sálfræði –
Í klónum á Covid
María Heimisdóttir, landlæknir –
Stuðningur við sjúklinga – rétt þjónusta á réttum stað
Pallborðsumræður í lokin
Heilsan okkar er fundaröð Háskóla Íslands og Landspítala sem hefur það að markmiði að varpa ljósi á áríðandi mál líðandi stundar er varða heilsu og heilbrigðisþjónustu. Þessir mánaðarlegu upplýsingafundir eru öllum opnir og verða á dagskrá síðasta föstudag hvers mánaðar.
