Heilsan okkar – Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta?
30. október 2026
11:45 til 13:15
Veröld, hús Vigdísar, Brynjólfsgötu 1
Annar fundur haustmisseris í fundaröðinni Heilsan okkar.
Umsjón og ritstjórn: Jóhanna E. Torfadóttir, dósent við Miðstöð í lýðheilsuvísindum
Fundarstjóri: Magnús Karl Magnússon, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands.
Hlekkur á beint streymi frá fundinum.
Dagskrá:
Viðar Guðjohnsen, lyfjafræðingur hjá Lyfjastofnun - Ólögleg peptíð, dauðans alvara
Hlíf Hauksdóttir, lyfjafræðingur og eigandi Apótek NOR – Peptíð á mannamáli
Arna Guðmundsdóttir, innkirtlalæknir hjá Landspítalanum – Peptíð, spennandi framtíð?
Bjarni Sigurðsson, lyfjafræðingur hjá Heilbrigðisráðuneytinu – Ströng lyfjagjöf nauðsynleg
Pallborðsumræður. Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar verður þátttakandi í pallborðsumræðum ásamt fyrirlesurum.
Heilsan okkar er fundaröð Háskóla Íslands og Landspítala sem hefur það að markmiði að varpa ljósi á áríðandi mál líðandi stundar er varða heilsu og heilbrigðisþjónustu. Þessir mánaðarlegu upplýsingafundir eru öllum opnir og eru á dagskrá síðasta föstudag hvers mánaðar.
