Heilsan okkar - fundaröð: Að eldast á Íslandi
23. maí 2025
11:30 til 13:00
Hringsal, Hringbraut

Heilsan okkar er ný fundaröð Háskóla Íslands og Landspítala sem hefur það að markmiði að varpa ljósi á áríðandi mál líðandi stundar er varða heilsu og heilbrigðisþjónustu.
Þessir mánaðarlegu upplýsingafundir eru öllum opnir og verða á dagskrá síðasta föstudag hvers mánaðar. Tekið er við spurinngum úr sal eftir að erindum lýkur og þá fara einnig fram pallborðsumræður.
Umsjón og ritstjórn: Margrét Guðnadóttir
Litið verður yfir stöðu og þróun aðstæðna hjá eldra fólki á Íslandi síðustu ár
Ásamt því að tengja saman lýðfræðilegar breytingar og heilbrigða öldrun við þær áskoranir sem fylgja breyttu heilsufarsástandi á efri árum. Í ljósi þess að þjóðin eldist hratt er mikilvægt að horfa til margbreytilegra aðstæðna þess fjölbreytta hóps sem eldra fólk er. Einnig er hægt að skoða upptöku af viðburðinum.
Dagskrá
Kolbeinn H. Stefánsson, dósent við Félagsráðgjafardeild – Lýðfræði og tekjur: Er fátækt hverfandi meðal eldra fólks?
Halldór S. Guðmundsson, dósent við Félagsráðgjafardeild – Velferð og vinna eldra fólks
Anna Björg Jónsdóttir, yfirlæknir öldrunarlækninga – Heilbrigð öldrun
Margrét Guðnadóttir, forstöðumaður Miðstöðvar í öldrunarfræðum og sérfræðingur í heimahjúkrun – Að eldast heima og aðlagast heilsumissi
Fundarstjóri er María Heimisdóttir, landlæknir
Hægt er að skoða fleiri upptökur af fundarröðinni Heilsan okkar á vef HÍ.
