Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Heilsan okkar - Fíknivandi ungmenna

27. febrúar 2026

11:30 til 13:00

Veröld - hús Vigdísar

Annar fundur í fundaröðinni Heilsan okkar 2026 fer fram í Veröld, húsi Vigdísar 27. febrúar kl. 11:30 til 13:00

Markmiðið með fundinum er að reyna að veita heildstæða mynd af stöðu barna og ungmenna á Íslandi í dag tengt fíknivanda. Fjallað verður um þær áskoranir sem við er að etja og hvernig mismunandi aðilar vinna að því að bregðast við stöðunni og bæta hana.

Umsjón og ritstjórn: Jóhanna E. Torfadóttir,lektor við Miðstöð í lýðheilsuvísindum
Samstarfsaðili: Farsældarnet barna
Fundarstjóri: Sigrún Daníelsdóttir, verkefnisstjóri geðræktar hjá embætti landlæknis

Hlekkur á beint streymi frá fundinum

Dagskrá

  • Ragný Þóra Guðjohnsen, dósent við Menntavísindasvið HÍ – Vanlíðan ungmenna og notkun vímuefna

  • Dr. Eva Dögg Sigurðardóttir sérfræðingur í teymi tölulegra upplýsinga og rannsókna hjá Barna- og fjölskyldustofu og lektor við félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands – Breytingar á tilkynningum til Barnaverndar síðustu árin vegna áhættuhegðunar

  • Guðmundur Fylkisson, Aðalvarðstjóri hjá Lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu - Staðan í málaflokki ,,týndra barna“ og helstu breytingar síðustu ára

  • Páll Heiðar Jónsson, sálfræðingur hjá SÁÁ – Fíknvandi ungmenna, meðferðarúrræði og áskoranir

  • Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri Mosfellsbæjar – „Börnin okkar“ forvarnarverkefni Mosfellsbæjar

  • Pallborðsumræður í lokin – Funi Sigurðsson framkvæmdastjóri meðferðarsviðs Barna- og fjölskyldustofu tekur þátt í umræðum

Heilsan okkar er fundaröð Háskóla Íslands og Landspítala sem hefur það að markmiði að varpa ljósi á áríðandi mál líðandi stundar er varða heilsu og heilbrigðisþjónustu. Þessir mánaðarlegu upplýsingafundir eru öllum opnir og verða á dagskrá síðasta föstudag hvers mánaðar.