Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Heilsan okkar - Aðferðir til að líða sem best í skammdeginu

28. nóvember 2025

11:30 til 13:00

Veröld - hús Vigdísar

Þriðji fundur í fundaröðinni Heilsan okkar haustið 2025 fer fram í Veröld – húsi Vigdísar 28. nóvember kl. 11:30 til 13:00

Markmið fundarins er að veita yfirsýn yfir stöðu vísindalegrar þekkingar tengt líðan og heilsu í skammdeginu.

Umsjón og ritstjórn: Jóhanna E. Torfadóttir
Fundarstjóri: Arna Hauksdóttir, prófessor og forstöðumaður Miðstöðvar í lýðheilsuvísindum

Hlekkur á beint streymi frá fundinum.

Dagskrá

  • Erik Brynjar Schweitz Eriksson, geðlæknir – Skammdegisþunglyndi, einkenni og úrræði

  • Hildur Guðný Ásgeirsdóttir, verkefnisstjóri hreyfingar hjá embætti landlæknis – Hvernig hefur hreyfing áhrif á líðan?

  • Helga Arnarsdóttir, verkefnisstjóri geðræktar hjá embætti landlæknis – Leiðir til að efla andlega líðan með HappApp

  • Edda Björk Þórðardóttir, sálfræðingur og dósent við Miðstöð í lýðheilsuvísindum – Að byggja upp góðan dag yfir vetrartímann

  • Erla Björnsdóttir, Sálfræðingur og framkvæmdastjóri Betri svefns - Betri svefn – Betri líðan í skammdeginu

  • Pallborðsumræður í lokin

Heilsan okkar er fundaröð Háskóla Íslands og Landspítala sem hefur það að markmiði að varpa ljósi á áríðandi mál líðandi stundar er varða heilsu og heilbrigðisþjónustu. Þessir mánaðarlegu upplýsingafundir eru öllum opnir og verða á dagskrá síðasta föstudag hvers mánaðar.