Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Gagnreynd læknisfræði – Frá hönnun rannsóknar til birtingar

18. júní 2026

14:00 til 15:00

Askja, stofa N-132.

Bruce Rubin, heiðursprófessor (Distinguished Professor) og fyrrverandi deildarforseti barnalækninga við Virginia Commonwealth University (VCU) í Bandaríkjunum, flytur fyrirlesturinn „Gagnreynd læknisfræði – Frá hönnun rannsóknar til birtingar“.

Þetta er fræðandi og jafnframt gamansamur fyrirlestur um hvers vegna og hvernig eigi að stunda rannsóknir. Fjallað verður um val rannsóknarefnis, rannsóknarhönnun og framkvæmd, gagnasöfnun, úrvinnslu og túlkun gagna, sem og birtingu rannsóknaniðurstaðna. Einnig verður farið yfir hvað beri að varast í rannsóknavinnu.

Nánar um Bruce Rubin má lesa hér.