Brú milli heimsálfa - Handan greiningarinnar - Aukinn skilningur á flóknum langvinnum veikindum
29. október 2026
08:50 til 16:00
Hilton Reykjavík, Salur A, Suðurlandsbraut 2
Heimsþekktir sérfræðingar sækja Ísland heim. Hér gefst einstakt tækifæri til að hlusta á leiðandi lækna- og vísindafólk, varðandi flókin langvinnum veikindum.
Alþjóðleg ráðstefnan „Brú milli heimsálfa“ verður haldin 29. október nk á Hotel Nordica frá kl 9 - 16, þar sem leiðandi innlendir og erlendir sérfræðingar á sviði ME, langvinns COVID, Umhverfisveikinda og POTS koma saman til að miðla nýjustu þekkingu úr rannsóknum og klínísku starfi.
Ráðstefnan er opin bæði fagfólki og almenningi.
Það sem gerir ráðstefnuna sérstaklega athyglisverða er að hingað til lands koma sérfræðingar sem hafa um árabil verið meðal áhrifamestu fræðimanna, lækna og rannsakenda heims á þessum sviðum. Margir þeirra hafa átt stóran þátt í að móta alþjóðlega umræðu, bæta klíníska þjónustu og auka skilning á sjúkdómum sem hafa áhrif á líf milljóna einstaklinga um allan heim.
Nánari upplýsingar um ráðstefnuna.
ME félag Íslands stendur að ráðstefnunni, í samvinnu við SUM - Samtök um áhrif umhverfis á heilsu, Samtök um POTS á Íslandi, Ský - félag fólks með Long Covid, Akureyrarklíníkina og Lýðheilsuráð Læknafélags Íslands. Áætlun um þingið varð til í starfsnefnd Embætti Landlæknis varðandi þessi veikindi, sem tækifæri til að miðla þekkingunni áfram.
Fyrirlesararnir geta veitt innsýn í:
Nýjustu rannsóknir á ME, langvinnu COVID, umhverfisveikindum og POTS.
Hvað vísindin segja um mögulegar líffræðilegar skýringar þessara sjúkdóma.
Stöðu greiningar og meðferðar á alþjóðavísu.
Áhrif langvinnra veikinda á heilbrigðiskerfi og samfélög.
Nýjar rannsóknaniðurstöður sem gætu breytt skilningi okkar á sjúkdómunum á komandi árum.
Á síðustu árum hefur alþjóðlegur áhugi á þessum sjúkdómum aukist verulega, ekki síst í kjölfar heimsfaraldurs COVID-19, og nú telja margir vísindamenn að rannsóknir á þessum sviðum séu meðal þeirra mest spennandi og mikilvægustu innan langvinnra sjúkdóma.
Ráðstefnan gefur íslensku samfélagi einstakt tækifæri til að tengjast þessari alþjóðlegu þekkingu beint.
Þarna verður tækifæri til að hlýða á og spyrja erlenda sérfræðinga sem hafa verið í fararbroddi rannsókna og klínískrar þróunar á þessum sviðum um áratugaskeið.
Dr. David Systrom (Bandaríkin)
Lungna- og gjörgæslulæknir við Brigham and Women's Hospital og dósent við Harvard Medical School. Hann hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu fyrir rannsóknir sínar á áreynsluóþoli hjá fólki með ME og langvinnt COVID og hefur átt stóran þátt í að sýna fram á líffræðilegar skýringar á einkennum sem sjúklingar upplifa.
Dr. Nancy Klimas (Bandaríkin)
Ein þekktasta vísindakona heims á sviði ME og langvinnra veikinda. Hún hefur rannsakað ME í meira en þrjá áratugi, stýrir Institute for Neuro-Immune Medicine við Nova Southeastern University og hefur birt hundruð vísindagreina á sviðinu. Hún er jafnframt meðal þeirra sérfræðinga sem hafa haft mest áhrif á þróun rannsókna á tengslum ónæmiskerfisins og ME.
Dr. Jesper Mehlsen (Danmörk)
Læknir og fyrrum prófessor við Kaupmannahafnarháskóla sem hefur sérhæft sig í rannsóknum á ósjálfráða taugakerfinu, ME og tengdum sjúkdómum. Hann hefur verið leiðandi í norrænum rannsóknum í mati og meðferð á lífeðlisfræðilegum breytingum hjá ME-sjúklingum og er einn virtasti sérfræðingur Evrópu á þessu sviði. Hann stýrir vinnuhópi sem er að vinna að evrópskum meðferðar protocol.
Theoharis Theoharides, (Bandaríkin)
Læknir og prófessor í klínískri ónæmisfræði og Framkvæmdastjóri við institute Neuro-Immund Medicine í Nova Southeastern háskólann í Flórida. Hann er leiðandi í (MCAS) Mastfrumuvirkjunar - heilkenni og einnig ræðir hann um áhrif umhverfis á heilsu og þá sérstaklega áhrif vegna áhrifa á heilsu í Rakaskemmdu húsnæði.
Skráning er hafin – Takmarkað sætaframboð – Skráningu lýkur 20. október
