Innri endurskoðun
Innri endurskoðandi Landspítala:
Gréta Gunnarsdóttir, gretagu@landspitali.is
Staðsetning: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík
Viðtalstími eftir samkomulagi.
Um innri endurskoðun
Innri endurskoðun Landspítala starfar skv. 2. mgr. 65. gr. laga nr. 123/2015 um opinber fjármál og framkvæmir áhættumiðaðar úttektir innan starfsemi spítalans samkvæmt endurskoðunaráætlun sem samþykkt er af forstjóra og stjórn. Hver úttekt er skipulögð, framkvæmd og niðurstöðum (úrbótakröfum) fylgt eftir í samræmi við alþjóðlega staðla um innri endurskoðun (IPPF).
Markmiðið með innri endurskoðun er að aðstoða stjórnendur við að ná rekstrarmarkmiðum sínum, og er það aðallega gert með úttektum á afmörkuðum þáttum rekstrar.
Staðlarnir lýsa tilgangi innri endurskoðunar þannig:
Innri endurskoðun eflir getu skipulagsheildarinnar til að skapa, vernda og viðhalda virði með því að veita stjórn og stjórnendum óháða, áhættumiðaða og hlutlæga staðfestingu, ráðgjöf, innsýn og framsýni.
Innri endurskoðun eykur getu skipulagsheildarinnar varðandi:
Árangursríka uppfyllingu markmiða.
Stjórnarhætti, áhættustýringu og eftirlitsferla.
Ákvarðanatöku og eftirlit.
Orðspor og trúverðugleika gagnvart hagsmunaaðilum sínum.
Getu til að þjóna almannahagsmunum.
