Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Iðjuþjálfun

Iðjuþjálfar Landspítala aðstoða sjúklinga sem eiga erfitt með daglegar athafnir eftir slys eða veikindi.

Þjónusta

Mat

  • færni sjúklinga við athafnir daglegs lífs (ADL)

  • aðstæður og hjálpartækjaþörf þeirra

  • vitræna getu sjúklinga

Eftir mat hefur farið fram, er í samráði við heilbrigðisstarfsfólk, útbúin skipulögð áætlun með það markmið að auka færni sjúklings og undirbúa undir næstu endurhæfingarskref eða útskrift.

Ráðgjöf og þjálfun

Iðjuþjálfar stuðla að bættum lífsgæðum og auknu sjálfstæði með því að veita sjúklingum ráðgjöf og þjálfun til að efla færni í daglegu lífi, til dæmis við:

  • eigin umsjá

  • heimili og fjölskyldu

  • nám og vinnu

  • tómstundir

Beiðnir

Beiðnir koma frá heilbrigðisstarfsfólki spítalans og meðferðaráætlun er gerð í samráði við fagaðila.

Sjá nánar um Iðjuþjálfun