Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Vökudeildin 50 ára

4. febrúar 2026

Þann 2. febrúar sl. fagnaði Vökudeildin 50 ára afmæli. Vökudeildin er nýbura- og ungbarnagjörgæsla og eina deild sinnar tegundar á landinu.

Stofnun Vökudeildar árið 1976 markaði byltingu í umönnun og meðferð nýbura því þá var í fyrsta sinn hægt að veita nýburum gjörgæslumeðferð. Um tíu prósent nýbura leggjast inn á Vökudeild eftir fæðingu eða rúmlega 400 börn á ári.

Að eiga barn á Vökudeildinni, hvort heldur sem er í stuttan eða langan tíma, er erfitt og krefjandi fyrir nýbakaða foreldra. Þeir upplifa hræðslu og vanmáttarkennd í bland við ást og hamingju. Þeir finna þó fljótt að börnin eru í góðum höndum. Ekki aðeins er deildin vel búin nýjustu tækjum heldur er starfsfólk mjög vel þjálfað og menntað. Þetta gerir að verkum að árangur í meðferð veikra nýbura og fyrirbura er á heimsmælikvarða.