Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Víxlþjálfun hjúkrunarfræðinga á gjörgæsludeildum og vöknun

24. júní 2026

Undirbúningur fyrir flutning í nýjan meðferðarkjarna felur í sér umfangsmiklar breytingar á skipulagi á starfsemi.

Ein af stóru breytingunum er sameining gjörgæsludeilda í eina öfluga deild, þar sem 23 rúma gjörgæsludeild mun taka við starfsemi sem í dag er rekin á tveimur stöðum. Einnig munu einingar sem tilheyra skurðstofum og vöknun sameinast við flutning í meðferðarkjarna. Vöknun mun sameinast í eina 38 stæða deild og bæta við sig verkefnum sem í dag eru mörg unnin á skurðdagdeildum.

Þrátt fyrir að enn sé einhver tími þar til starfsemi hefst í nýjum meðferðarkjarna, er mikilvægt að hefja undirbúning og þjálfun starfsfólks í breyttum hlutverkum. Eitt af undirbúningsverkefnunum snýr að aðlögun og þjálfun starfsfólks og samræmingu verkferla. Það er kallað víxlþjálfun þegar starfsfólk fer á milli sambærilegra eininga í einhvern tiltekinn tíma. Markmiðið er að koma eins mörgum í gegnum víxlþjálfun og hægt er og auka þannig hæfni stærri hóps til að sinna sérhæfðum verkefnum gjörgæsluhjúkrunar og vöknunarhjúkrunar.

Aukin samræming í verklagi og áhersla á menntun

Undanfarin ár hefur markvisst verið unnið að því að undirbúa sameiningu stórra deilda í nýjum meðferðarkjarna. Gott samstarf er á milli stjórnenda gjörgæsludeildanna þar sem reglulegt samtal, sameiginleg sýn og gagnkvæmur stuðningur hafa verið í forgrunni. Þessi samvinna hefur lagt grunn að aukinni samræmingu í verklagi og styrkt faglegt umhverfi deildanna.

Aukin áhersla á menntun hefur einnig skipt sköpum. Meistaranám í gjörgæsluhjúkrun hefur styrkt faglegan grunn hjúkrunar, aukið samræmi í klínískum vinnubrögðum og stuðlað að sameiginlegri faglegri nálgun. Sérfræðingar í hjúkrun hafa gegnt lykilhlutverki í þessari þróun og leitt áfram faglegt samtal.

Frá því snemma á síðasta ári eru vöknunardeildirnar á Hringbraut og í Fossvogi með einn deildarstjóra en áður var hvor eining hluti af svæfingu á sitt hvorum staðnum. Með tilkomu deildarstjóra vöknunar hafa markmið og leiðarljós deildarinnar orðið skýrari og hjúkrun sjúklinga sem koma á vöknun eftir inngrip fengið aukið vægi.

Jákvæð reynsla af víxlþjálfun

Sem hluti af undirbúningi fyrir sameiningu hefur verið lögð sérstök áhersla á víxlþjálfun starfsfólks. Hjúkrunarfræðingum á gjörgæsludeildum og vöknun hefur staðið til boða að taka þátt í skiptiprógrammi þar sem þeir flytja sig á milli deilda í tvo til fjóra mánuði í senn. Á vöknun er það einnig hluti af aðlögun allra nýrra starfsmanna að fá þjálfun á báðum vöknunareiningunum þó að þeir eigi sína heimadeild.

Markmiðið er tvíþætt: annars vegar að efla færni starfsfólks í mismunandi sérgreinum og hins vegar að byggja upp traust og skilning milli deilda. Með þessu móti kynnist starfsfólkið betur þvert á deildir.

Skipulag skiptanna hefur verið þannig að jafnvægi haldist á milli deilda, með jöfnum fjölda hjúkrunarfræðinga sem flytja sig á milli Hringbrautar og Fossvogs. Reynslan af verkefninu hefur verið mjög jákvæð. Starfsfólk hefur öðlast innsýn í ólíka starfshætti, styrkt faglega hæfni sína og aukið sveigjanleika í starfi.

Umbótaverkefni og aukinn skilningur

Stjórnendur hafa lagt áherslu á að fylgja verkefninu eftir með markvissum hætti. Haldið hefur verið utan um reynslu þátttakenda með sameiginlegum fundum þar sem farið er yfir upplifun, lærdóm og tillögur að umbótum. Fjölmörg umbótaverkefni hafa sprottið út frá þeirri reynslu sem myndast hefur við starfsmannaskiptin en einnig myndast aukinn skilningur á starfsumhverfi deildanna. Út frá reynslunni og samanburði hefur starfsfólk bent á tækifæri til einföldunar, aukins öryggis og bættrar nýtingar ferla.

Þannig hafa stjórnendur fengið endurgjöf á mismunandi verklag eins og fyrirkomulag stöðumats, vinnu með skjáborð deilda í Heilsugátt, ólíka samvinnu milli starfsstétta eftir deild og fleira. Endurgjöf og samanburður þessara starfsmanna tryggir að þekking og innsýn nýtist í áframhaldandi þróun starfseminnar.

Víxlþjálfun eykur faglegt öryggi

Víxlþjálfunin er því ekki einungis þjálfunarverkefni heldur stefnumótandi aðgerð í breytingastjórnun. Hún stuðlar að samræmdri menningu, eykur faglegt öryggi og undirbýr starfsfólk fyrir nýtt skipulag þar sem samstarf verður enn nánara en áður.

Með þessum markvissu skrefum er verið að byggja upp grunn fyrir sameinaðar gjörgæslu- og vöknunardeildir framtíðarinnar í nýjum meðferðakjarna.