Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Vísindi á vordögum (sameiginleg ráðstefna HVS og LSH ) - ágripakall

18. september 2026

Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands og Landspítali hafa sameinað vísindaráðstefnur sínar í eina öfluga ráðstefnu sem mun miða að því að efla tengsl, samvinnu og sýnileika vísinda.

Ráðstefnan ber heitið Vísindi á vordögum og verður haldin 14. og 15. apríl 2027.

Á ráðstefnunni koma saman vísindamenn, sérfræðingar, kennarar, nemendur, fulltrúar fyrirtækja og áhugasamur almenningur til að kynna og ræða nýjustu rannsóknir og þróun í líf- og heilbrigðisvísindum á Íslandi.

Þátttaka er öllum opin og gjaldfrjáls.

Opnað hefur verið fyrir móttöku ágripa og öll sem stunda rannsóknir í líf- og heilbrigðisvísindum eru hvött til að senda inn ágrip.

Ágripin munu öll fara í yfirlestur hjá vísindanefnd ráðstefnunnar og samþykkt ágrip verða birt á heimasíðu ráðstefnunnar.

Mikilvægar tímasetningar:

  • 17. september - Ágripakall opnað

  • 16. nóvember - Ágripakalli lokað

  • Lok janúar - Höfundum svarað í síðasta lagi

  • mars - Dagskrá tilbúin

  • 14. og 15. Apríl - Ráðstefna

Athugið að ágripakallið er í gegnum Researchweb og það þarf að gera aðgang að kerfinu áður en hægt er að senda inn ágrip. Leiðbeiningar fyrir Researchweb og innsendingu ágripa má finna hér.


-----------------------------------------------------

Vísindi á vordögum (mergerd conferene of SHS and LSH) - call for abstracts

The School of Health Sciences, University of Iceland, and Landspítali - University Hospital have merged their scientific conferences into one dynamic event aimed at strengthening connections, collaboration, and the visibility of science.

The conference, titled Science in Springtime, will be held on April 14–15, 2027.

The conference brings together researchers, professionals, teachers, students, company representatives, and the interested public to present and discuss the latest research and developments in the life and health sciences in Iceland.

Participation is open to everyone and free of charge.

The abstract submission is now open, and all those conducting research in the life and health sciences are encouraged to submit an abstract.
All submitted abstracts will be reviewed by the conference’s scientific committee, and accepted abstracts will be published on the conference website.

Important dates:

  • September 17th – Abstract submission opens

  • November 16th – Abstract submission closes

  • End of January – Authors notified at the latest

  • March – Conference program finalized

  • April 14-15 – Conference takes place

Please note that abstract submission takes place through Researchweb, and you must create an account in the system before submitting an abstract. Instructions for Researchweb and abstract submission can be found here.