Vinnustofa um verklag við lyfjarýni
23. mars 2026
Nýverið var haldin þverfagleg vinnustofa um verklag við lyfjarýni. Lyfjarýni er markviss og gagnrýnin yfirferð á allri lyfjameðferð einstaklings með það að markmiði að greina, fyrirbyggja og bregðast við lyfjatengdum vandamálum, bæta klínískan ávinning og tryggja öryggi meðferðar.

Dr. Alpana Mair, lyfjafræðingur og sérfræðingur í lyfjarýni, leiddi vinnustofuna. Hún hefur stýrt þróun verklags við lyfjarýni sem kallast Polypharmacy Guidance (7 Steps). Verklagið hefur verið innleitt víða í Evrópu og er notað bæði á Landspítala og í heilsugæslunni.
Vinnustofan og heimsókn Dr. Alpana Mair voru samstarfsverkefni Landspítala og Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu, með stuðningi frá Lyfjafræðingafélagi Íslands.

