Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Vinnuhópur móti verklag um afnám þagnarskyldu vegna brýnnar nauðsynjar

16. janúar 2026

Forstjóri Landspítala hefur skipað vinnuhóp til að skila tillögum að verklagi við ákvarðanatöku um afnám þagnarskyldu vegna brýnnar nauðsynjar sem hægt verði að birta í gæðahandbók spítalans.

Í lögum um heilbrigðisstarfsmenn eru settar fram strangar kröfur um þagmælsku og eiga þær við bjóði lög annað eða rökstudd ástæða er til þess að rjúfa þagnarskyldu vegna brýnnar nauðsynjar. Þá er heilbrigðisstarfsmönnum heimilt, að beiðni sjúklings, að tilkynna til lögreglu heimilisofbeldi eða ofbeldi í nánu sambandi sem ógnað gæti lífi eða heilsu sjúklings.

Nýverið var túlkun þessara ákvæða til umfjöllunar í samfélaginu og skapaðist talsverð umræða um skýrleika þeirra, meðal annars á meðal starfsfólks Landspítala. Því var ákveðið að setja saman vinnuhóp sem á að skila tillögu að verklagi fyrir 15. mars. Hópurinn er skipaður eftirfarandi starfsfólki spítalans:

Rögnvaldur G. Gunnarsson, yfirlögfræðingur
Hjalti Már Björnsson, yfirlæknir
Gunnlaug Thorlacius, yfirfélagsráðgjafi
Erla Björg Birgisdóttir, yfirsálfræðingur
Marta Jóns Hjördísardóttir, talskona sjúklinga

Anna Birgit Ómarsdóttir, lögfræðingur, verður starfsmaður hópsins.