Vel sótt Vísindaþing
19. mars 2026
Ríflega 300 manns sóttu sameiginlegt Vísindaþing 2026 sem haldið var þann 13. mars sl. á Hilton hóteli.

Í ár var lögð áhersla á verkjameðferð aðgerðasjúklinga en erindin voru fjölbreytt - allt frá nýjungum í barnasvæfingum til skurðstofa framtíðarinnar. Í hádeginu var veggspjaldasýning en á staðnum voru einnig birgjar sem í hléum sýndu lækningatæki og -vörur. Að lokum voru flutt verðlaunaerindi og verðlaun voru afhent.
Vísindaþing hefur verið haldið árlega um áratugaskeið, upphaflega af Skurðlæknafélagi Íslands og Svæfinga- og gjörgæslulæknafélagi Íslands en smám saman hafa fleiri félög bæst við, líkt og Félag íslenskra fæðinga- og kvensjúkdómalækna, fagdeild svæfingahjúkrunarfræðinga, fagdeild skurðhjúkrunarfræðinga, fagdeild gjörgæsluhjúkrunarfræðinga og fagráð hjúkrunar aðgerðasjúklinga, og þingið þannig orðið þverfaglegra.





