Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Veitingaþjónustan heiðruð í flokknum Vinnustaðurinn okkar

4. ágúst 2026

Veitingaþjónusta Landspítala var heiðruð í flokknum Vinnustaðurinn okkar á ársfundi spítalans í vor.

Veitingaþjónustan framleiðir daglega um sex þúsund einingar af mat fyrir sjúklinga og starfsfólk. Þar starfa m.a. næringarfræðingar sem eru kokkunum innan handar við að setja saman matseðilinn enda er næring mikilvægur hluti af meðferð sjúklings. Þá á það að vera tilhlökkunarefni og notaleg stund fyrir starfsfólk að fara saman í mat.

Úr tilnefningu: „Veitingaþjónustan sýnir bæði fagmennsku og metnað í störfum sínum. Undanfarin misseri hafa orðið markverðar framfarir í gæðum máltíða sem hafa jákvæð áhrif á líðan sjúklinga og aðstandenda og vinnudag starfsfólks. Með þessu mikilvæga framlagi gegnir veitingaþjónustan lykilhlutverki í daglegri starfsemi spítalans og er vel að heiðrun komið.“