Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Vegna umfjöllunar um berkla

3. febrúar 2026

Að gefnu tilefni vill Landspítali árétta nokkur atriði sem tengjast umfjöllun í fjölmiðlum um starfsmenn sem hafa orðið útsettir fyrir berklasmiti í störfum sínum á Landspítala eða hafa mælst jákvæðir í reglulegri skimun fyrir berklum meðal starfsmanna.

Í því samhengi þarf ekki að fjölyrða um starfsaðstæður starfsfólks bráðaþjónustu spítalans, sem ítrekað hefur komið fram að séu óviðundandi hvað marga þætti varðar, ekki síst smitvarnir.

  • Jákvæð niðurstaða úr berklaprófi er ekki staðfesting á berklasjúkdómi og einstaklingurinn er ekki smitandi.

  • Einstaklingar sem hafa orðið útsettir fyrir berklum mynda ónæmissvar og helst niðurstaða berklaprófs því jákvæð út ævina.

  • Einstaklingar sem hafa fengið jákvætt berklapróf eiga á hættu á að þróa með sér berklaveiki en almennt má búast við því að hættan á að veikjast sé um 10%. Áhætta á þróun berklaveiki er þó mismunandi meðal fólks og hafa ýmsir þættir áhrif, m.a. undirliggjandi sjúkdómar.

  • Áætlað er að um fjórðungur alls mannkyns sé með jákvætt berklapróf án þess þó að vera smitandi. Tíðni virks berklasjúkdóms er mun lægri og mjög mismikil eftir löndum.

  • Á Íslandi hefur tíðni virkra berklasýkinga verið nokkuð stöðug, eða í um 3 tilfelli á hverja 100 000 íbúa.

  • Einstaklingar sem fá jákvæða niðurstöðu úr berklaprófi er í ákveðnum tilvikum boðið upp á fyrirbyggjandi meðferð til að draga úr líkum þess að þeir veikist síðar.

  • Meðferð við virkum berklasjúkdómi er umfangsmikil en yfirleitt eru notuð fjögur berklalyf í byrjun og eru sjúklingar jafnan hættir að vera smitandi innan fjögurra vikna.

Landspítali telur rétt að ítreka að unnið er hörðum höndum að því að tryggja öruggar aðstæður hverju sinni fyrir þá sem þurfa að sækja þjónustu spítalans. Óhætt er að fullyrða að fólk sem sækir þjónustu bráðamóttöku spítalans þurfi ekki að óttast hættu á berklasmiti.