Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Varpar ljósi á skaðsemi gáttatifs í doktorsritgerð

8. júní 2026

Maríanna Garðarsdóttir, forstöðulæknir myndgreiningarþjónustu Landspítala, varði nýlega doktorsritgerð sína við læknadeild Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið „The role of atrial fibrillation and aortic stiffness in brain structure and function“.

Maríanna ásamt doktorsnefndinni.

Maríanna hefur unnið að þessu verkefni undanfarin ár samhliða fullu starfi á röntgendeildinni en rannsóknir hennar snúast um áhrif gáttatifs og æðakölkunar á heilarúmmál, blóðflæði til heila og vitræna getu. Heilarúmmál og blóðflæði til heila var metið með segulómun af heila og m.a. var notast við svokallaða „arterial spin labelling“ nálgun til að meta blóðflæðið.

Rannsóknir Maríönnu hafa vakið talsverða athygli og þykja varpa nýju ljósi á skaðsemi gáttatifs. Andmælendur voru Jens Cosedis-Nielsen, prófessor við Háskólann í Árósum, og David Fallmar, dósent við Háskólann í Uppsölum.

Leiðbeinandi og umsjónarkennari var Davíð O. Arnar, yfirlæknir hjartalækninga við Landspítala og prófessor við læknadeild Háskóla Íslands. Aðrir í doktorsnefnd voru Sigurður Sigurðsson, meðleiðbeinandi, forstöðumaður myndgreiningar Hjartaverndar og dósent, Vilmundur Guðnason, forstöðumaður Hjartaverndar og prófessor við læknadeild Háskóla Íslands, og Thor Aspelund, prófessor við læknadeild Háskóla Íslands.