Tómas Þór Ágústsson ráðinn framkvæmdastjóri lækninga
13. janúar 2026
Tómas Þór Ágústsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóra lækninga Landspítala frá og með 1. febrúar næstkomandi í kjölfar auglýsingar og ráðningarferlis. Tómas Þór hefur verið starfandi framkvæmdastjóri lækninga á spítalanum síðan í júlí 2022 í fjarveru Ólafs Baldurssonar.

Tómas Þór lauk kandídatsprófi í læknisfræði frá Háskóla Íslands árið 2001 og stundaði svo sérnám í almennum lyflækningum og innkirtlalækningum við Háskólasjúkrahús í Oxford, London og lengst af á Guy´s & St Thomas´ sjúkrahúsinu. Eftir heimkomu hefur hann starfað á Landspítala sem sérfræðilæknir, kennslustjóri í lyflækningum, yfirlæknir sérnáms, formaður framhaldsmenntunarráðs og framkvæmdastjóri lækninga.
Tómas hefur gegnt kennslustöðum við heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands (HÍ) frá 2017 ásamt því að standa fyrir ýmissi faglegri uppbyggingu lækninga á Landspítala og á Íslandi almennt, s.s. uppbyggingu handleiðaraþjálfunar og menntavísinda lækna í samstarfi við aðrar heilbrigðisstofnanir og menntavísindasvið HÍ. Hann hefur einnig tekið virkan þátt í félagsstörfum, m.a. innan Fræðslustofnunar Læknafélags Íslands, Lyfjaeftirlits Íslands og gegnt formennsku Samtaka um meðferð sára.
Tómas hefur einnig gegnt ýmsum ábyrgðarhlutverkum fyrir ráðuneyti og stjórnvöld er tengjast lækningum. Ásamt því að starfa áfram sem framkvæmdastjóri lækninga á Landspítala gegnir hann hlutverki „Associate Global Director for Europe“ fyrir Royal College of Physicians í Bretlandi og starfar sem sérfræðilæknir í klínískri vinnu innan almennra lyflækninga, innkirtlalækninga og bráðalækninga á Landspítala.
„Ég hlakka til að halda áfram að vinna að uppbyggingu og framþróun gæða, öryggis, hagkvæmni og samræmingu læknisþjónustu á Landspítala. Spítalinn á að veita framúrskarandi læknisþjónustu sem uppfyllir ítrustu alþjóðlegu gæða- og árangurskröfur þar sem upplifun og þátttaka notenda er í forgrunni. Á komandi árum þarf læknisþjónusta sjúkrahússins að þróast þannig að hún sé að minnsta kosti sambærileg við það sem best gerist á Norðurlöndum og sé til þess fallin að tryggja skilvirka þjónustu af hæstu gæðum í nýjum húsakynnum Landspítala og aðgengi landsmanna allra að hátækniþjónustu. Á Landspítala á að starfa metnaðarfullt, eftirsótt og stolt samfélag lækna á heimsmælikvarða.“
