Tíu útskrifuðust úr sérfræðinámi í hjúkrunar- og ljósmóðurfræði
26. janúar 2026
Föstudaginn 23. janúar sl. útskrifuðust tíu hjúkrunarfræðingar og ljósmæður úr sérfræðinámi í hjúkrunar- og ljósmóðurfræði á Landspítala. Aldrei áður hafa jafnmargir útskrifast úr náminu en markmið þess er að hjúkrunarfræðingar og ljósmæður fái tækifæri til að þróa sérfræðiþekkingu á ákveðnu fræðasviði sem nýtist skjólstæðingum Landspítala.

Við hátíðarathöfn sem fram fór í Hringsal kynntu útskriftarnemarnir verkefni sín í sérfræðináminu og fengu afhentar viðurkenningar. Útskriftarnemarnir eru:
• Anna Tómasdóttir, hjúkrunarfræðingur: Hjúkrun sjúklinga með smitsjúkdóma
• Fanney Viktoría Kristjánsdóttir, hjúkrunarfræðingur: Geðhjúkrun
• Guðrún Árnadóttir, hjúkrunarfræðingur: Hjúkrun krabbameinssjúklinga
• Gunnhildur Kildelund, hjúkrunarfræðingur: Hjúkrun aldraðra
• Sigríður Rúna Þóroddsdóttir, hjúkrunarfræðingur. Svæfingahjúkrun
• Sigurveig Ósk Pálsdóttir, ljósmóðir: Fæðingarhjálp
• Sjöfn Kjartansdóttir, hjúkrunarfræðingur: Gjörgæsluhjúkrun
• Svana Katla Þorsteinsdóttir, hjúkrunarfræðingur: Hjúkrun barna, með áherslu á bráðahjúkrun
• Sölvi Sveinsson, hjúkrunarfræðingur: Gjörgæsluhjúkrun
• Þuríður Geirsdóttir, hjúkrunarfræðingur: Hjúkrun aðgerðasjúklinga
Við athöfnina fluttu Katrín Blöndal, kennslustjóri sérfræðináms, og Hrund Scheving Thorsteinsson, deildarstjóri menntadeildar, ávörp. Fundarstjóri var Gyða Baldursdóttir, hjúkrunarfræðingur MS.





