Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Styttri biðtími eftir geislameðferð

16. desember 2025

Framan af ári var biðtími eftir geislameðferð vegna krabbameina að lengjast en frá hausti hefur tekist að vinna þennan biðtíma niður. Í byrjun sumars var meðalbiðtími eftir geislameðferð vegna krabbameins í blöðruhálskirtli 123 dagar en er nú orðinn 50 dagar. Meðalbiðtími eftir meðferð vegna lágáhættu brjóstakrabbameins var 62 dagar en er núna 30 dagar.

Margt hefur verið gert til að vinna niður biðtíma. Munar þar mest um samstillt átak starfsfólks og stjórnenda geislameðferðardeildar við að vinna skipulega að því að stytta biðlista og tryggja sjúklingum meðferð nær ásættanlegum biðtíma. Því til viðbótar höfðu Sjúkratryggingar Íslands milligöngu um að hægt væri að bjóða ákveðnum sjúklingahóp að fara í geislameðferð á Karolinska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi.

Spá Krabbameinsfélags Íslands gerir ráð fyrir 63% aukningu í greiningu krabbameinstilfella til ársins 2045 og þarf u.þ.b. helmingur þeirra sem greinast með krabbamein á geislameðferð að halda. Í ljósi þessa er brýnt að halda áfram uppbyggingu á geislameðferðardeild og tryggja að deildin búi áfram yfir öflugu starfsfólki ásamt viðeigandi húsnæði og tækjabúnað til að hægt sé að sinna öllum þeim sjúklingum sem þurfa geislameðferð á komandi árum.