Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Styttist í lok framkvæmda á Grensási

21. ágúst 2026

Framkvæmdir við stækkun Grensásdeildar eru á lokastigi. Ytri frágangi er að mestu lokið og innanhúss eru framkvæmdir langt á veg komnar.

Uppsetning innréttinga og búnaðar heldur áfram víðs vegar um húsið og lokafrágangur stendur yfir á raf-, lagna- og stjórnkerfum. Jafnframt er unnið að frágangi yfirborða, prófunum einstakra kerfa og undirbúningi fyrir heildargangsetningu byggingarinnar.

Mikil tilhlökkun ríkir hjá starfsfólki og sjúklingum eftir nýja húsnæðinu sem mun koma til viðbótar við rúmlega 50 ára gamalt húsnæði sem ekki var sérstaklega hannað með endurhæfingu í huga.

Ljósmyndari og kvikmyndatökumaður Landspítala litu við á Grensási fyrr í sumar.

Í nýju byggingunni verður ný sjúkradeild með 19 einbýlum með salernum þar sem nútímakröfur eru allar uppfylltar. Á neðri hæðinni verður rúmgóð aðstaða fyrir sjúkra- og iðjuþjálfun og þar verður nýr tækjabúnaður. Húsnæðið er hannað með hliðsjón af þörfum þjálfunar við endurhæfingu.

Veglegur matsalur verður fyrir sjúklinga, aðstandendur og starfsfólk auk kaffihúss. Fallegur þjálfunargarður með gróðurhúsi verður í suðurátt þar sem hægt verður að njóta útiveru og þjálfunar samtímis.

Húsið verður kærkomin viðbót við aðstöðu til þjálfunar. Sundlaugin hefur þegar verið gerð upp og er allt þar eins og best verður á kosið.

Hollvinir Grensáss hafa verið dyggir stuðningsaðilar við kaup á nýjum tækjabúnaði og fleiru fyrir Grensás. Einnig hafa hinir ýmsu einstaklingar og félagasamtök stutt við bakið á starfseminni.