Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Styrkir úr vísindasjóði Landspítala afhentir

12. desember 2025

Styrkir Vísindasjóðs Landspítala til ungra vísindamanna voru afhentir við hátíðlega athöfn þann 10. desember sl. í Hringsal.

Freyja Jónsdóttir, fyrir hönd Helgu Rutar Steinsdóttur, Scott Gribbon, Ragna Kristín Guðbrandsdóttir, Anna Guðlaug Gunnarsdóttir, Valgeir Steinn Runólfsson og Runólfur Pálsson.

Athöfnin hófst með ávarpi Karls Andersen, formanns Vísindaráðs. Í kjölfarið kynntu styrkþegar tveggja ára styrkja frá árinu 2024 framvindu sinna verkefna. Því næst afhenti Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala, fimm nýja styrki úr vísindasjóði Landspítala til ungra og efnilegra rannsakenda sem eru að hefja sinn vísindaferil.

Að lokinni afhendingu styrkja héldu nýir styrkhafar kynningu á sínum verkefnum. Fjórir rannsakendur hlutu þriggja milljóna styrk til tveggja ára og einn rannsakandi hlaut 1,5 milljóna króna styrk til eins árs. Vísindasjóður Landspítala og Vísindaráð óska styrkhöfum til hamingju og áframhaldandi velgengni í sínum rannsóknum.

Styrkþegar ársins 2025:

Scott Gribbon hlaut eina og hálfa milljón í styrk til eins árs fyrir verkefnið „Algengi og greiningarskráning Charcot-fótar hjá sykursjúkum einstaklingum á Íslandi“.

Helga Rut Steinsdóttir hlaut þriggja milljóna styrk til tveggja ára fyrir verkefnið „Þróun alþjóðlegra klínískra leiðbeininga með Delfí aðferð um áhrif lyfja á þróun óráðs meðal skurðsjúklinga“.

Anna Guðlaug Gunnarsdóttir hlaut þriggja milljóna styrk til tveggja ára fyrir verkefnið „Blóðsýkingar með Staphylococcus Aureus á Íslandi 1995-2025“.

Ragna Kristín Guðbrandsdóttir hlaut þriggja milljóna styrk til tveggja ára fyrir verkefnið „Fjöllyfjanotkun hjá einstaklingum á ADHD lyfjum á Íslandi“.

Valgeir Steinn Runólfsson hlaut þriggja milljóna styrk til tveggja ára fyrir verkefnið „Tengsl krabbameina í börnum við örveruflóruna, sýkingar og frávik í starfsemi ónæmiskerfisins“.