Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Streituskyndihjálp innleidd í geðþjónustu Landspítala

10. nóvember 2026

Í geðþjónustu Landspítala er nú unnið að verkefni sem kallast „Starfsmaður styður starfsmann“. Verkefnið felur í sér að innleiða streituskyndihjálp sem leið til að hjálpa starfsfólki og stjórnendum að bera kennsl á streitu snemma.

Starf á spítala getur verið bæði gefandi og krefjandi. Á venjulegum vinnudegi þarf starfsfólk oft á tíðum að takast á við margskonar streituvaldandi aðstæður, svo sem að mæta fólki á öllum aldri með alvarleg veikindi, krefjandi samskipti, álag eða óvænt atvik. Þótt við séum þjálfuð í að takast á við krefjandi verkefni getur mikið eða langvarandi álag haft áhrif á líðan, starfsgetu og heilsu okkar.

Hvernig getum við stutt hvert annað þegar álagið verður mikið?

Við vitum að stuðningur samstarfsfólks og stjórnenda skiptir miklu mál í krefjandi starfsumhverfi. Í geðþjónustu Landspítala er nú unnið að verkefni sem kallast „Starfsmaður styður starfsmann“. Verkefnið felur í sér að innleiða streituskyndihjálp (e. Stress First Aid) sem leið til að hjálpa starfsfólki og stjórnendum að bera kennsl á streitu snemma, bæði hjá okkur sjálfum og samstarfsfólki okkar. Reynslan af streituskyndihjálp á öðrum vinnustöðum sýnir að hún getur m.a. stuðlað að því að starfsfólk upplifi meiri stuðning frá samstarfsfólki og stjórnendum og auðveldað vinnustöðum að bregðast við þegar álag er mikið eða langvarandi.

Hvað er streituskyndihjálp?

Streituskyndihjálp hjálpar okkur að taka fyrr eftir því þegar streita og álag er farið að hafa áhrif á líðan eða hegðun, bæði hjá okkur sjálfum og öðrum, og hjálpar okkur og samstarfsfólki að ná aftur jafnvægi. Notuð er svokölluð streituvídd sem lýsir því hvernig líðan og virkni getur breyst eftir því sem streita eykst. Litir eru notaðir til að tákna mismunandi líðan. Á græna svæðinu er einstaklingur í góðu jafnvægi, á gula svæðinu eru komin aukin streituviðbrögð, á appelsínugula svæðinu er streitan farin að hafa veruleg áhrif á líðan eða virkni og á rauða svæðinu getur verið þörf á sérhæfðri aðstoð. Þannig hjálpar streituvíddin okkur að átta okkur á því hvenær er þörf á stuðningi og hvers konar stuðningur gæti hjálpað. Streituskyndihjálp setur fram sjö lykilaðgerðir sem snúast um að taka eftir breytingum, meta þörf fyrir stuðning og bregðast við. Markmiðið er að flétta stuðning inn í daglegt starf.

Hvernig lítur þetta út í daglegu starfi?

Í daglegu starfi snýst streituskyndihjálp fyrst og fremst um að starfsfólk sé betur í stakk búið til að taka eftir breytingum hjá sjálfu sér og samstarfsfólki sínu, og bregðast við þegar streita er farin að segja til sín. Gefum okkur að samstarfsmaður sem er venjulega yfirvegaður í samskiptum er farinn að draga sig í hlé, er orðinn óvenju stuttur í spuna eða virðist eiga erfitt með að einbeita sér. Viðbrögð samstarfsfólks geta þá falist í því að gefa sér tíma til að spyrja hvernig viðkomandi hafi það, hlusta á hann og ræða við hann um hvað gæti hjálpað í þessum aðstæðum. Ef samstarfsmaðurinn á erfitt með að lýsa líðan, getur hann notað litakóðana og sagt - ég er appelsínugulur. Streituskyndihjálp snýst ekki um að samstarfsfólk eigi að verða meðferðaraðilar hvor annars heldur er áhersla lögð á að einfalt samtal, smá svigrúm eða aðstoð við að finna réttan stuðning skipti máli samstarfsfélögum til stuðnings. Stundum nægir einfaldur stuðningur en í öðrum tilvikum getur þurft að styðja samstarfsfólk með því að vísa í formlegri úrræði.

Staða innleiðingar í geðþjónustunni

Innleiðing á streituskyndihjálp í geðþjónustunni hófst í byrjun árs 2026 með þýðingu og staðfærslu námsefnis. Hugsunin er að allt starfsfólk geðþjónustu fái boð um að fara á námskeið í streituskyndihjálp og því var lögð áhersla á að geðþjónustan yrði sjálfbær með þjálfun til framtíðar. Í ágúst síðastliðnum var þjálfaður hópur innan geðþjónustu sem mun þjálfa annað starfsfólk og var það unnið í samvinnu við erlenda sérfræðinga. Stjórnendur í geðþjónustu fengu jafnframt þjálfun í streituskyndihjálp og hvernig nýta má streituskyndihjálp í daglegu starfi. Samhliða því að haldin verða námskeið fyrir starfsfólk verður unnið að innleiðingu streituskyndihjálpar í daglegt starf deilda.

Með verkefninu er stefnt á að skapa sameiginlegt tungumál um streitu og efla vinnustaðamenningu þar sem við látum okkur líðan hver annars varða, þorum að ræða um streitu og höfum leiðir til að bregðast við á uppbyggilegan hátt.