Stöðnun er ekki valkostur
27. október 2026
Forstjórapistill Runólfs Pálssonar úr nýjasta tölublaði Spítalapúlsins.

Á ársfundi Landspítala árið 2025 var sameinaður spítali meginumfjöllunarefnið en þá voru liðin 25 ár frá sameiningu Landspítala og Sjúkrahúss Reykjavíkur. Yfirlýst markmið sameiningarinnar var að stofnað yrði nútímalegt háskólasjúkrahús með stærri þjónustueiningum, öflugra fagumhverfi og áherslu á uppbyggingu sérhæfðrar heilbrigðisþjónustu. Jafnframt var lagt upp með að styrkja mennta- og vísindahlutverk spítalans í samstarfi við Háskóla Íslands. Sannarlega hefur margt áunnist. Skapast hefur sameinaður kraftur sérgreina í læknisfræði og þverfaglegrar sérhæfðrar þjónustu af ýmsum toga ásamt því að tækifæri til kennslu í heilbrigðisvísindagreinum hafa tvímælalaust aukist og borið árangur. Sem dæmi má nefna uppbyggingu sérnáms í læknisfræði innan Landspítala sem skipta mun sköpum fyrir nýliðun í framtíðinni og hefur einnig fengið alþjóðlega viðurkenningu fyrir gæði og skipulag. Þessi mikilvægu framfaraskref má þakka öflugu fagfólki sem hefur haft frumkvæði að nauðsynlegri þróun kennsluhlutverksins en einnig þeirri umgjörð sem varð til við sameininguna.
Án efa var hagræðing einnig meðal markmiða sameiningarinnar, ekki síst í augum stjórnvalda, enda hefur niðurskurður fjárveitinga, sem náði hámarki í kjölfar efnahagshrunsins, einkennt þann aldarfjórðung sem liðinn er frá stofnun háskólasjúkrahússins. Raunar hefði stærsta tækifærið til að ná fram hagræðingu falist í sameiningu bráðaþjónustunnar á einum stað en það fór því miður forgörðum og löng bið eftir nýjum byggingum veldur því að spítalinn er enn í sömu sporum. Uppbyggingin sem nú stendur yfir við Hringbraut er engu að síður gleðiefni og mun færa spítalann yfir í nútímann hvað húsakost og tækjabúnað varðar. Það er hins vegar ljóst að nýju mannvirkin eru eingöngu hluti af nýjum spítala því ekki hafa verið teknar ákvarðanir um frekari byggingaframkvæmdir sem þó eru nauðsynlegar til að tryggja nægilegan fjölda legurýma og aðstöðu fyrir dag- og göngudeildarstarfsemi svo eitthvað sé nefnt.
Nú er svo komið að Landspítali þolir ekki frekari niðurskurð ef spítalinn á að geta staðið undir nafni sem háskólasjúkrahús. Brýnt er að snúa við þeirri þróun sem lýst er að framan því stöðnun er einfaldlega ekki valkostur. Hafa verður hugfast að á komandi árum mun eftirspurn eftir þjónustu spítalans aukast jafnt og þétt en því miður er fyrirsjáanlegt að starfsfólki mun ekki fjölga í takt við aukin verkefni. Á sama tíma munum við, líkt og undanfarin ár, sjá framfarir í meðferð sjúkdóma sem byggjast á lyfjaþróun og heilbrigðistækni. Umhverfi heilbrigðisþjónustu, sérstaklega þegar kemur að stafrænni þróun og gervigreind, er á miklum hraða um þessar mundir og óhjákvæmilegt fyrir háskólasjúkrahús að taka virkan þátt í þeirri þróun til að unnt verði að mæta aukinni eftirspurn eftir þjónustu. Íhaldssamri aðhaldsstefnu yfirvalda gagnvart spítalanum verður einfaldlega að linna ef við sem þjóð hyggjumst viðhalda heilbrigðisþjónustu í háum gæðaflokki. Nærtæk dæmi um þá nálgun sem virðist í fyrirrúmi hjá stjórnvöldum eru vanefndir varðandi launaendurmat til að mæta kjarasamningsbundnum hækkunum og vangreiðslur fyrir verk sem alla jafna ættu að fást greidd á grundvelli samnings um þjónustutengda fjármögnun. Á hinn bóginn er hagkvæmni í rekstri spítalans mikilvæg sem fyrr, annars vegar til að skapa aukið svigrúm til þróunar og hins vegar til að tryggja ábyrga meðferð ríkisfjár.
Vert er að hvetja bæði starfsfólk spítalans og almenning til þess að rýna þróun fjárveitinga til Landspítala síðustu 25 árin. Í þessu samhengi er enn fremur athyglisvert að bera þróun fjárframlaga til stofnunarinnar saman við útgjöld vegna samnings Sjúkratrygginga Íslands við sérgreinalækna á þessu sama tímabili, en þó einkum síðustu ár. Sá samanburður vekur óneitanlega efasemdir um hvort rétt sé haldið á stýringu fjárveitinga innan heilbrigðisþjónustunnar hér á landi.
Að veita stærstu stofnun landsins forstöðu fylgir ábyrgð sem ég tek alvarlega. Landspítali hefur verið minn vettvangur stærstan hluta starfsævinnar og hafa þróast sterkar taugar til vinnustaðarins, samstarfsfólksins og samfélagsins sem við þjónum. Ég hef undanfarin misseri haft vaxandi áhyggjur af stöðu spítalans innan íslenskrar heilbrigðisþjónustu og hafa þær aukist með framlagningu frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2027. Vissulega verður að horfa til þess að útgjöld vegna heilbrigðisþjónustu aukast stöðugt og eru orðin mjög íþyngjandi fyrir samfélag okkar líkt og er reyndin meðal annarra þróaðra ríkja. Því skiptir öllu máli að fjárveitingum til þjónustunnar sé stýrt í takt við verkefni sem ráðast af eðlilegri forgangsröðun. Vöxtur starfsemi sem ekki lýtur virkri stýringu hefur verið áberandi síðustu ár og ber hæst sívaxandi kostnaður ríkisins vegna samnings við sjálfstætt starfandi aðila. Að mínu mati er óhjákvæmilegt að ráðist verði í endurskoðun á skipulagi og stýringu íslenskrar heilbrigðisþjónustu í því skyni að tryggja landsmönnum fullnægjandi þjónustu til framtíðar ásamt markvissri nýtingu opinberra fjármuna. Í því sambandi er mikilvægt að hafa í huga veigamikið hlutverk Landspítala sem háskólasjúkrahúss þjóðarinnar og lykilstoðar íslenskrar heilbrigðisþjónustu. Heildræn og samræmd stýring er að mínu mati sú leið sem tryggir raunhæfa hagkvæmni í því smáa og flókna kerfi sem íslenska heilbrigðisþjónustan er.
Forstjóratíð mín hefur nú staðið í tæp fimm ár og lýkur upphaflegum skipunartíma mínum 1. mars næstkomandi. Starfið er krefjandi en á sama tíma gefandi. Mikilvægir áfangar hafa náðst og unnið er hörðum höndum að mörgum áhugaverðum verkefnum. Fagmennska starfsfólks í þjónustu við sjúklinga og aukin afköst á því sviði eru mér sérstakt ánægjuefni. Ég hef mikinn metnað fyrir hönd Landspítala og mikla trú á þeim hæfileikum sem búa í mannauði stofnunarinnar. Ég hef því fallist á beiðni ráðherra um að sinna starfi forstjóra áfram og hefur skipun mín því verið framlengd til loka ársins 2029.
---
Spítalapúlsinn má lesa í heild sinni hér.
