Stefnt á að hefja aftur háþrýstisúrefnismeðferðir sem fyrst
14. janúar 2026
Með frétt dags. 14. nóvember sl. var tilkynnt og áréttað að spítalinn muni halda áfram háþrýstisúrefnismeðferð sem hefur verið veitt á spítalanum frá árinu 1993.

Um áramótin tók spítalinn alfarið yfir rekstur háþrýsti- og köfunarlækningadeildarinnar en stærstur hluti starfseminnar byggir á sérstökum háþrýstiklefa sem er í eigu spítalans. Háþrýstisúrefnismeðferð er nauðsynleg þjónusta sem m.a. er veitt í kjölfar köfunarslysa og alvarlegrar reykeitrunar. Vaxandi fjöldi ábendinga byggir nú á gagnreyndum upplýsingum og því hefur meðferðinni verði beitt í auknum mæli í viðureign við þrálát sár, aukaverkanir geislameðferðar, heilaáverka og ýmsa aðra kvilla.
Nú er unnið að öryggisúttekt og viðhaldi en einnig verður farið yfir alla verkferla og ábendingar fyrir meðferð. Er þetta mikilvægur hluti af yfirfærslu verkefna til spítalans og er allt kapp lagt á að vinna það á sem faglegastan hátt en ekki síður sem hraðast þannig að hægt verði að hefja háþrýstisúrefnismeðferðir á ný sem allra fyrst.
Vegna fjölda fyrirspurna um stöðu mála vill spítalinn koma því á framfæri að fyrirsjáanlegt er að tafir verði áfram á skipulagðri meðferð. Haft verður samband eins fljótt og mögulegt er við alla þá sjúklinga sem nú bíða eftir meðferð. Unnið verður eftir forgangsröðun þar sem horft er til ábendinga um meðferð.
