Starfsþróunarár sjúkraliða eykur fagmennsku og öryggi
29. apríl 2026
Skortur á sjúkraliðum til starfa á Landspítala hefur verið viðvarandi um nokkuð skeið og mikill vilji er til að fjölga þeim.

Markviss og öflug starfsþróun getur gegnt lykilhlutverki í því að laða nýja sjúkraliða til starfa og efla áhuga á starfi sjúkraliða á Landspítala til framtíðar. Í ljósi skorts á sjúkraliðum og takmarkaðrar nýliðunar í stéttinni var ákveðið að þróa námslínu fyrir nýlega útskrifaða og nýráðna (innan árs) sjúkraliða. Að jafnaði hefja 50 sjúkraliðar árlega störf á Landspítala og því um nægilega stóran hóp að ræða svo unnt sé að skipuleggja námslínu með þessum hætti.
Tilgangur starfsþróunarárs fyrir sjúkraliða er að laða að sjúkraliða til starfa, styðja við faglega þróun þeirra og auðvelda aðlögun að starfi á Landspítala, auka starfsánægju og festu í starfi. Með markvissri fræðslu og þjálfun má ætla að þeir nái fyrr betri tökum á starfinu, dýpki þekkingu sína og efli færni í klínískum aðstæðum.
Starfsþróunarárinu er þannig ætlað að stuðla að auknu öryggi og fagmennsku í starfi sjúkraliða, sem skilar sér í betri þjónustu við sjúklinga, auknu öryggi þeirra og öflugri heilbrigðisþjónustu.
Starfsþróunarár sjúkraliða hófst þann 20. janúar síðastliðinn og 43 sjúkraliðar taka þátt. Fjölbreyttum kennsluaðferðum er beitt og eru leiðbeinendur námslínunnar að stærstum hluta hjúkrunarfræðingar, en sjúkraliðar og aðrir starfsmenn koma jafnframt að kennslunni. Fræðsludagar á vormisseri verða sex, og 4-5 á haustmisseri.
