Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Stafræn lausn fyrir hjartasjúklinga tekin í notkun á Landspítala

28. maí 2026

Landspítali hefur hafið tilraunainnleiðingu á stafrænni heilbrigðislausn frá Sidekick Health fyrir hjartasjúklinga. Lausnin styður fjarvöktun, eftirfylgd og virkari þátttöku sjúklinga, með áherslu á kransæðasjúklinga í upphafi.

Verkefnið byggir á samstarfi Landspítala og Sidekick Health frá 2019, sem hefur leitt af sér styrki og rannsóknir til þróunar stafrænna hjartalækninga. Árið 2021 hlaut verkefnið meðal annars 135 milljóna króna Öndvegisstyrk frá Rannís til þróunar á stafrænum hjartalækningum, sem styrkir stöðu þess sem frumkvöðull á þessu sviði og eykur möguleika á áframhaldandi nýsköpun og betri þjónustu við hjartasjúklinga.

Byggt á sterkum rannsóknarniðurstöðum

Innleiðing stafrænnar lausnar á Landspítala byggir á tveimur nýlegum íslenskum slembirannsóknum sem sýna jákvæð áhrif á sjúklinga með hjartabilun og kransæðasjúkdóma.

Í rannsókn á 175 sjúklingum á göngudeild hjartabilunar komu fram bætingar í efnaskiptabreytum, betri sjálfsmeðferð, aukin þekking á eigin sjúkdómi og lífsgæði, sérstaklega hjá þeim með alvarlegustu einkennin. Þátttaka var mjög góð í bæði fjarvöktunar- og fjarstuðningshluta. Í rannsókn á 200 sjúklingum með kransæðasjúkdóm var frábær þátttaka allan tímann. Hlutfall sjúklinga með væg einkenni jókst úr 57% í 83% og marktækur árangur náðist í aukinni þekkingu, betri lyfjaheldni og jákvæðum áhrifum á klíníska þætti eins og blóðþrýsting, mittismál og blóðsykur.

Nú ætla hjartaþjónusta Landspítala og Sidekick Health að hefja tilraunainnleiðingu á göngudeildum fyrir hjartasjúklinga á Landspítala.

Styður við daglegt klínískt starf

Smáforrit frá SidekickHealth, þróað í samstarfi við hjartalækna og hjúkrunarfræðinga, gerir heilbrigðisstarfsfólki kleift að fylgjast með sjúklingum í fjarvöktun og leiðbeina þeim um heilsueflandi lífsstíl.

Lögð er áhersla á samþættingu lausnarinnar við daglegt starf hjartaþjónustunnar, meðal annars með:

  • Reglubundnu eftirliti með einkennum með einföldu litakóðunarkerfi (rautt, gult, grænt) sem auðveldar forgangsröðun þeirra sem þurfa inngrip

  • Markvissri fræðslu og leiðbeiningum til sjúklinga

  • Bættum samskiptum milli sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólks

Fjarvöktun gæti verið hentug fyrir sjúklinga með langvinn en stöðug veikindi og gæti fækkað komum á heilbrigðisstofnanir ásamt því að stuðla að tíðari samskiptum gegnum stafræna miðla. Slík nálgun gæti einnig leitt til þess að versnun sjúkdóms greinist fyrr og þannig mögulega fækkað komum á bráðamóttöku og innlögnum.

Stafrænar lausnir auðvelda miðlun fræðslu og stuðnings við heilsueflandi lífsstíl, svo sem hreyfingu, hollt mataræði, reykleysi, hóflega áfengisneyslu, góða svefnvenju og streitustjórnun, sem skiptir máli fyrir alla, hvort sem fólk er hraust eða glímir við langvinna sjúkdóma.

Hluti af þróun í átt að fjarþjónustu

Áhugaverðar tæknilausnir eru meira til skoðunar til að bæta þjónustu við sjúklinga og auðvelda starfsfólki að sinna sínum störfum. Þessi þróun er enn sem komið er skammt á veg komin en búist er við að fjölþættar tæknilausnir verði æ stærri þáttur af starfi heilbrigðisstarfsmanna á næstu árum.

Á hjartaþjónustu Landspítala er sérstök áhersla lögð á að þróa þjónustu sem:

  • Styður sjálfstæði sjúklinga

  • Eykur aðgengi að þjónustu

  • Nýtir tækni til að bæta meðferðarárangur

Sjálfsumönnun er lykilþáttur í meðferð hjartabilunar og felur meðal annars í sér góða lyfjaheldni, viðeigandi mataræði og skjót viðbrögð við versnandi einkennum. Stafræn lausn getur styrkt þessa þætti með samfelldri eftirfylgni og fræðslu.

Næstu skref

Tilraunaverkefnið mun standa yfir í 24 mánuði. Árangur verður metinn miðað við:

  • Upplifun sjúklinga

  • Klínískar niðurstöður

  • Áhrif á nýtingu þjónustu

Samstarf sem styður nýsköpun í heilbrigðisþjónustu

Verkefnið sýnir hvernig markviss nýting stafrænnar tækni getur styrkt sjálfbæra þróun heilbrigðisþjónustu og bætt bæði upplifun og árangur sjúklinga. Það er einnig gott dæmi um samstarf opinberra og einkaaðila sem skilar lausnum sem geta nýst víða.

Mikilvægt er að skoða hvernig heilbrigðistækni getur tryggt hagkvæma þjónustu með góðum gæðum. Öldrun samfélaga, aukning langvinnra sjúkdóma, mannekla í heilbrigðisstarfi og vaxandi kostnaður valda því að óbreytt nálgun dugir ekki til að viðhalda sama þjónustustigi.

Tímaritið TIME valdi Sidekick Health nýlega sem eitt fremsta heilbrigðistæknifyrirtæki heims árið 2025. Átta fyrirtæki í flokki stafrænna meðferða hlutu hæstu einkunn, og Sidekick Health var eina evrópska fyrirtækið á þeim lista.