Sókn í hjúkrun bæklunarsjúklinga á Landspítala
30. október 2026
Í dag, 30. október, er alþjóðlegur dagur bæklunarhjúkrunar haldinn hátíðlegur. Dagurinn er tileinkaður mikilvægu framlagi hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða sem hjúkra einstaklingum með áverka á stoðkerfi og stoðkerfissjúkdóma.

Bæklunarhjúkrun er fjölbreytt sérsvið þar sem markmiðið er að styðja sjúklinga í gegnum áföll, aðgerðir, endurhæfingu og bata, með áherslu á öryggi, virkni og lífsgæði samkvæmt nýjustu og bestu gagnreyndu þekkingu sem völ er á.
Nýlega hafa orðið mikilvægar breytingar í þjónustu við bæklunarsjúklinga á Landspítala og í byrjun maí á þessu ári var bæklunarskurðdeildin stækkuð úr 23 plássum í 35 pláss. Með þessari uppbyggingu eru allir inniliggjandi bæklunarsjúklingar Landspítala loksins samankomnir á eina legudeild. Það skapar aukin tækifæri til faglegrar þróunar í hjúkrun, samræmdra verkferla, kennslu og rannsókna. Jafnframt styrkir það samstarf ólíkra fagstétta og stuðlar að enn betri þjónustu fyrir sjúklinga og aðstandendur þeirra.
Fjölbreytt verkefni
Á bæklunarskurðdeild AB5 eru fjölbreytt verkefni, allt frá valaðgerðum á borð við liðskiptaaðgerðir til bráðaaðgerða vegna háorkuáverka og beinbrota. Nýlega var tekin upp fjöláverkavöktun á deildinni þar sem sjúklingar eru í nánu eftirliti fyrsta sólarhringinn eftir áverka á fleiri en einu líkamskerfi. Sérhæfð mjaðmarbrotaeining er á deildinni og þar er veitt þverfagleg og samfelld þjónusta við eldri einstaklinga sem hafa hlotið mjaðmarbrot, með það að markmiði að styðja skjótan bata og bæta árangur meðferðar.
Mikilvægur hluti þjónustunnar fer fram á göngudeild bæklunar G3. Þar eru yfir 20 þúsund komur árlega og verkefnin fjölbreytt. Hjúkrunarfræðingar sinna meðal annars eftirfylgd eftir áverka og skurðaðgerðir, sárameðferðum, gifsunum, kennslu og ráðgjöf. Göngudeildin gegnir lykilhlutverki í samfellu þjónustunnar og tryggir að sjúklingar fái nauðsynlega eftirfylgd þar til bata er náð. Töluverður hluti minni bæklunaraðgerða fer svo í gegnum dagdeild skurðlækninga A4 og þar hefur myndast sérhæfing í bæklunarhjúkrun þar sem hugmyndafræði flýtibata er alltumlykjandi.
Á alþjóðlegum degi bæklunarhjúkrunar er tilefni til að þakka öllu því öfluga starfsfólki sem hjúkrar bæklunarsjúklingum af fagmennsku og alúð á hverjum degi. Á sama tíma er ástæða til að fagna þeirri uppbyggingu sem átt hefur sér stað á Landspítala og þeim tækifærum sem fram undan eru til að efla enn frekar þjónustu, menntun og rannsóknir á sviði bæklunarhjúkrunar.
Í tilefni dagsins verður opið hús á bæklunarskurðdeild AB5 í dag kl. 13-15. Þá mun starfsfólk á deildinni taka yfir Instagram Landspítala.
