Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Skríban innleidd í geðþjónustu

25. mars 2026

Geðþjónusta Landspítala og nýsköpunarfyrirtækið Careflux hafa undirritað samstarfssamning um þjálfun og innleiðingu hugbúnaðar, sem nefnist Skríban, sem nýtir gervigreind til að styðja við klíníska skráningu.

Skríban notar gervigreindarlíkön sem geta unnið úr klínísku samtali og skriflegum upplýsingum og umbreytt þeim í skipulagðar nótur í sjúkraskrárkerfi spítalans. Lausnin nýtir talgreiningu og sjálfvirka textavinnslu til að draga saman lykilatriði úr viðtölum og klínískum samtölum, setja fram í staðlað form og styðja þannig við samræmda skráningu. Sérstök áhersla er lögð á öryggi gagna og að vinnsla upplýsinga fari fram í samræmi við kröfur embættis landlæknis um persónuvernd og trúnað.

Metin hafa verið áhrif lausnarinnar á persónuvernd (MÁP) til að tryggja að hún uppfylli gildandi reglur um meðferð viðkvæmra persónuupplýsinga.

Verulegur tími fagaðila fer í handvirka skráningu. Á göngudeildum hafa fagaðilar, að undanskildum sérfræðilæknum, ekki haft aðgang að dikteringu og safnast því skráningarvinna auðveldlega upp. Það þýðir að meiri tími fer í skráningarvinnu og minni tími fer í meðferðarvinnu sem getur haft áhrif á gæði þjónustunnar. Núverandi kerfi hafa jafnframt ekki boðið upp á sjálfvirka textavinnslu, sem þýðir að fagaðilar þurfa að umbreyta munnlegum upplýsingum í formlegar færslur án tæknilegrar aðstoðar. Innleiðing Skríbunnar er liður í að bregðast við þessari stöðu með markvissri, gagnadrifinni lausn.

Verkefnið hefur skýr skilgreind markmið. Gert er ráð fyrir að skráningartími styttist, skráningar verði staðlaðri, klínískar nótur klárist innan 24 klukkustunda og upplifun starfsmanna af skráningarferlum batni. Með þessum breytingum er stefnt að því að fagfólk geti varið meiri tíma í meðferðarvinnu án þess að gæði eða rekjanleiki upplýsinga skerðist. Jafnframt verður leitað endurgjafar frá sjúklingum um notkun lausnarinnar og hvort hún styðji við þátttöku þeirra í eigin meðferð.

Að verkefninu koma fjölmargir fulltrúar geðsviðs, heilbrigðis- og upplýsingatæknisviðs (HUT) og Careflux. Verkefnið krefst samstilltrar þátttöku ólíkra aðila og finna stjórnendur fyrir miklum meðbyr og áhuga. Þessi stuðningur er gríðarlega mikilvægur fyrir framgang verkefnisins.

Með innleiðingu Skríbunnar er stigið markvisst skref inn í framtíðina. Ljóst er að endurskoða og þróa þarf verklag til að mæta þeim áskorunum sem heilbrigðiskerfið stendur frammi fyrir, og þetta er einn liður í þeirri umbreytingu sem þarf að eiga sér stað.