Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Skáldsögur um lífið og tilveruna góður grunnur fyrir læknastarfið

21. september 2026

Hulda Hjartardóttir lét af störfum sem yfirlæknir fæðingateymis Landspítala síðastliðið sumar, 37 árum eftir að hún hóf fyrst störf á kvennadeild spítalans sem sérnámslæknir.

Hulda er í miklum metum hjá þeim sem hafa notið aðstoðar hennar og lýsa samstarfsmenn henni sem traustri, yfirvegaðri, einstaklega fagmannlegri og með skýra sýn. Skal engan undra að alveg frá því hún ákvað að fara í læknisfræði var stefnan sett á að verða fæðingarlæknir. Það sem gæti þó komið fólki á óvart er að Hulda hóf upphaflega nám í málvísindum við Háskóla Íslands og stefndi á að verða málfræðingur. Örlögin gripu aftur á móti í taumana; hún eignaðist frumburðinn fyrsta veturinn í náminu og varð í kjölfarið heilluð af öllu tengdu fæðingum. Hún keypti kennslubækur um fæðingafræði í Bóksölu stúdenta og eftir það varð ekki aftur snúið. Næsta haust hóf hún nám í læknisfræði. 

Eftir að Hulda lauk sérnámsgrunnsárinu árið 1989 hóf hún störf á kvennadeildinni og var þar fyrstu tvö árin í sérnáminu í kvensjúkdómum og fæðingarhjálp. Hún flutti því næst til Bretlands þar sem hún lauk bresku sérfræðiprófi árið 1994 og varð þá meðlimur (MRCOG) í Royal College of Obstetricians and Gynaecologists og síðan fellow (FRCOG) í september 2015. Hún fékk sérfræðileyfi á Íslandi í október 1997 og hóf störf árið eftir sem sérfræðingur á kvennadeild Landspítala. Árið 2017 varð hún yfirlæknir fæðingateymisins.  

Legudögum fækkað verulega 

Spurð um helstu breytingarnar sem hafa orðið á þessum tæpu fjörutíu árum sem hún hefur unnið á kvennadeildinni, segir Hulda að hvað varðar deildina sjálfa þá hafi þar verið að finna þrjár legudeildir, samanborið við eina nú, enda var meira um að konur lægju inni fyrir og eftir fæðingu. Á meðgöngudeild gátu konur legið jafnvel mánuðum saman og á sængurkvennadeildunum tveimur lágu konur frá þremur og allt upp í sjö daga. „Við höfum getað fækkað því mjög mikið að konur þurfi að liggja inni hjá okkur, án þess að það hafi leitt til verri útkomu. Ef eitthvað er hefur útkoman orðið betri enda var það byggt á frekar litlum vísindagrunni að láta konur liggja fyrir stundum vikum saman,“ segir Hulda. 

Fleiri frísk börn fyrir tilstuðlan ómskoðana 

Hvað varðar tækniframfarir síðustu áratugina segir Hulda það hafa verið mikla byltingu þegar ómskoðanir komu fram. Þær voru vissulega orðnar hluti af starfinu á kvennadeildinni á níunda áratugnum þegar hún steig sín fyrstu skref sem læknir en þá voru tækin svo stór að þau fylltu næstum heilt herbergi og ekki var auðveldlega hægt að færa þau á milli staða. Gríðarleg þróun hafi orðið næstu 10-20 árin á eftir og eru nú til þráðlaus ómtæki litlu stærri en farsímar. 

Hulda segir að þessi bylting með tilkomu ómskoðana hafi falist í því að með þeim var hægt að skoða barnið og vita fyrirfram hvort það væru fósturgallar til staðar, hvort hætta væri á ferðum vegna blóðleysis hjá barninu þegar móðirin væri með mótefni (Rhesus-misræmi), komast að því hvort barnið væri lítið nú eða leiða í ljós að börnin væru fleiri en eitt og í kjölfarið sjá hvort fjölburarnir væru eineggja eða ekki. Fjölmörgum vandamálum, sem ómskoðanir leiða í ljós, er hægt að bregðast við og leysa meðan á meðgöngunni stendur og þannig „breyta algjörlega útkomunni,“ segir Hulda. „Við fáum frísk börn í stað þess að þau séu mögulega mjög lasin.“ Þetta má til dæmis gera með því að setja fæðingu af stað á réttum tímapunkti, t.d. þegar um vaxtarskerðingu er að ræða. Í öðrum tilvikum sé hægt að undirbúa fæðingu vel svo barnið fái strax sérhæfða meðferð nýburalækna, skurðlækna eða hjartalækna sem hafi sýnt sig að bæta bæði lifun þeirra og heilsu. 

Á meðan ómskoðanir hafa fyrst og fremst verið gerðar í eftirliti á meðgöngu hafa síðastliðin ár verið gerðar ýmsar rannsóknir á því hvernig þær geta komið að gagni í fæðingum. Þótti Huldu möguleikarnir sem því fylgja svo áhugaverðir að hún dreif sig í doktorsnám til að geta rannsakað þá nánar. Doktorsverkefni hennar tengdist notkun ómtækja í fæðingum - hvað sé eðlilegt að sjá með þeim og hvernig þau geta hjálpað við að meta fæðingar. „Þegar ný tækni kemur fram þarf að passa að þótt manni finnist hún sniðug og skemmtileg, þá verður hún alltaf að vera til bóta,“ segir Hulda. „Ef þú myndir skoða konu í fæðingu með ómtæki, halda að eitthvað sé óeðlilegt og gera inngrip byggt á því sem reynist svo hafa verið óþarfi, þá er kannski verr af stað farið en heima setið.“ Í doktorsverkefni sínu fylgdist Hulda með fæðingum hjá frumbyrjum, kortlagði hvað er eðlilegt, hvernig fæðing er þegar horft er á hana með ómtæki og teiknaði í kjölfarið upp grafískar myndir af því. Hún varði svo doktorsritgerð sína, Ómskoðanir til að meta framgang og snúning fósturhöfuðs í fæðingum frumbyrja, fyrir fimm árum.  

Að vera til staðar á hamingju- og sorgarstundum 

Hulda segir það vera mikil forréttindi að fá að vera með fólki á þessari merkilegu stundu þegar barn þeirra kemur í heiminn. „En þegar maður starfar við þetta þá skiptir mjög miklu máli fyrir okkur að geta líka verið með fólki þegar eitthvað kemur upp á. Þá er auðvitað markmiðið að reyna að gera sorgina, sem óhjákvæmilega fylgir, eins bærilega og upplifunina eins þolanlega og hægt er og fylgja fólki vel eftir,“ segir hún. „Það er mjög þakklátt ef vel gengur og maður fær gjarnan mestu þakkirnar frá því fólki.“ 

Spurð hvernig hægt sé að reyna að taka ekki inn á sig þann mikla harm sem fólk upplifir þegar illa fer, segir Hulda að þá verði að hafa hugfast að þetta sé sorg fólksins og þótt maður megi vera þátttakandi þá þurfi að passa að taka ekki yfir. „Maður þarf að geta verið þessi stuðningur á hliðarlínunni, það er okkar hlutverk. Það er í sjálfu sér ekkert að því að starfsfólk sýni viðbrögð, það gerist oft að fólk fellir tár með þeim sem eru að ganga í gegnum erfiðustu sorgina. Því er aldrei á neinn hátt held ég tekið á neikvæðan hátt af þeim sem eru að ganga í gegnum það. Síðan þarf maður að reyna að halda fókus og hugsa hvernig sé með bestum hætti hægt að styðja við þetta fólk. Svo er það stundum þannig að starfsfólk sýnir þessa rólegu, faglegu hlið en fer síðan fram og grætur. Það gerist líka, en maður þarf að reyna að finna hvað er viðeigandi.“ 

Það er ekki alltaf hægt að víkja öllum vinnutengdum málum úr huganum þegar búið er að stimpla sig út í lok vaktar. „Það eru óhjákvæmilega alltaf mál sem snerta meira við manni en önnur og það geta verið alls konar ástæður fyrir því. Við getum sjálf verið að ganga í gegnum erfiðleika eða það er verið að ýfa upp gömul sár hjá okkur svo það er ekki alltaf hægt að skilja vinnuna eftir,“ segir Hulda. „Maður tekur alltaf eitthvað með sér heim.“ 

Góð samvinna ljósmæðra og fæðingarlækna nauðsynleg 

Aðspurð segir Hulda að þegar hún tók við yfirlæknastöðunni árið 2017 hafi hún ekki verið með fastmótaða mynd af því hvernig stjórnandi hún vildi vera. „En ég vildi gjarnan leggja traust á mitt samstarfsfólk. Ég var með frábært fólk og vildi vinna vel með ljósmæðrunum líka og hafa gott traust þarna á milli,“ segir hún. Í þessu starfi sé afar mikilvægt að fæðingarlæknar og ljósmæður séu samtaka. „Ég hef oft sagt að besta fæðingarhjálpin og besta útkoman í heiminum er í þessum löndum þar sem bæði ljósmæður og fæðingarlæknar vinna og þar sem samstarfið er gott.“ 

Sem yfirlæknir vildi hún leggja áherslu á að reikna ætti með að fæðing sé eðlilegt fyrirbæri og að langflestar konur geti fætt eðlilega. Fyrsta hugsunin eigi alltaf að vera hvernig hægt sé að hjálpa konunni að fæða eðlilega, þrátt fyrir að hugsanlega hafi eitthvað ekki gengið vel í fyrri fæðingum eða meðgangan sé á einhvern hátt flókin. Næst eigi að huga að því hvernig hægt sé að tryggja sem best öryggi móður og barns. Ýmis inngrip geti verið nauðsynleg og beinlínis ráðlögð en það þurfi að fara fram samtal um kosti og galla eins og hægt er. Nauðsynlegt sé að huga að hvoru tveggja öryggi og upplifun. „Þegar útkoman er almennt svona góð að því leytinu til að konur deyja sjaldan í fæðingu eða verða fyrir alvarlegum skaða og börn deyja sjaldan í tengslum við meðgöngu og fæðingu þá fer fólk meira að horfa til þess að upplifunin þurfi að vera sem best,“ segir Hulda. Gagnrýni sem starfsfólk á fæðingardeildinni fái helst tengist því að viðmótið hafi ekki verið nógu gott eða konum finnist ekki hafa verið hlustað á þær. „Kvartanir snúast meira um upplifun en beinlínis útkomu. Þetta er eitthvað sem við verðum alltaf að hafa í huga því fæðing er svo gríðarlega persónuleg upplifun. Það er þetta samstillta verkefni okkar og ljósmæðranna að reyna að tryggja að hver kona fái þá þjónustu, viðmót og tíma sem hún þarf. Það er ekki hægt að setja fæðingar í box eða endalausa ramma. Það þarf að vera ákveðinn sveigjanleiki.“ 

Mikilvægt að kunna að eiga í góðum samskiptum við fólk  

Hulda segir starfið hafa kennt sér mikið um fólk og lífið. „Ég hef oft sagt að mér finnst ofuráhersla á að undirbúa sig fyrir læknanám með mikilli stærðfræði, eðlisfræði og efnafræði en ég er ekkert endilega á því að það sé verra að hafa fengið góðan grunn í tungumálum og bókmenntum. Að lesa skáldsögur sem fjalla um lífið og tilveruna. Samskipti eru svo stór hluti af okkar starfi. Hvernig talar maður við fólk, hvernig upplifir fólk heiminn, hvaða reynslu hefur það á bakinu þegar við hittum það sem getur svo haft áhrif á viðmót þess við okkur og hvernig okkar viðmót gagnvart því skilar sér. Maður þarf svo mikið að lesa fólk og það er ekki spurning að maður lærir á fólk í svona löngu starfi.“