Sjúkraskrárdeild – traustur burðarás í upplýsingaflæði Landspítala
7. maí 2026
Sjúkraskrárdeild Landspítala veitir stoðþjónustu við nánast allar sérgreinar/einingar innan spítalans og gegnir lykilhlutverki að tryggja öruggt og skilvirkt upplýsingaflæði um sjúklinga, allt frá fyrstu skráningu til varðveislu og miðlunar gagna.

Markmið sjúkraskrárdeildarinnar er fagmennska, aukin gæði og staðlað verklag við skráningu, gott samstarf við klínískar deildir og þátttaka í framþróunarverkefnum.
Deildin heyrir undir Tómas Þór Ágústsson, framkvæmdastjóra lækninga. Klara Katrín Friðriksdóttir er starfandi deildarstjóri og leiðir daglega starfsemi ásamt dyggum stuðningi fjögurra teymisstjóra, ritunar, læknisfræðilegrar kóðunar, afhendingar gagna og skjalavörslu. Starfsstöðvar deildarinnar eru tvær; ritun, kóðun og afhending afrita úr rafrænni sjúkraskrá fer fram í Kópavogi og miðlægt sjúkraskrársafn er starfrækt í Fossvogi, en þar er m.a. unnið að flokkun og skráningu gagna til afhendingar til Þjóðskjalasafns Íslands.

Réttar upplýsingar á réttum tíma
Starfsfólk deildarinnar eru 54 og er mikill meirihluti menntaður sem heilbrigðisgagnafræðingar, ásamt heilbrigðisriturum og skrifstofumönnum. Síðastliðin ár hefur innleiðing teymisvinnu verið í fyrirrúmi og í dag eru starfandi 14 teymi ritunar og kóðunar, auk teymis sem sér um afhendingu afrita úr sjúkraskrá og annað teymi starfar á sjúkraskrársafni. Starfsfólkið býr yfir sérhæfðri þekkingu á lögum, reglum og verklagi sem varða meðferð viðkvæmra heilbrigðisupplýsinga. Verkefnin eru fjölbreytt eins og ritun eftir diktati, læknisfræðileg kóðun samkvæmt ICD-10, frágangur gagna tengdur DRG, afhending afrita úr sjúkraskrá, skjalavarsla og stuðningur við klínískar einingar. Réttar upplýsingar á réttum tíma skipta sköpum í meðferð sjúklinga, og vinnur starfsfólk í samstarfi við lækna, hjúkrunarfræðinga og annað heilbrigðisstarfsfólk.

Umfangsmikil starfsemi
Sem dæmi um starfsemi sjúkraskrárdeildar, voru á árinu 2025 afgreiddar um 11.000 beiðnir um afrit úr sjúkraskrá til ýmissa aðila eins og embættis landlæknis, Sjúkratrygginga Íslands, lögreglu, dómstóla og einstaklinga. Um 32.000 nótur af vinnulistum voru kóðaðar samkvæmt ICD-10, sérstöku flokkunarkerfi í heilbrigðisþjónustu, og 85.000 nótur voru ritaðar í sjúkraskrárkerfið Sögu eftir diktati. Á sjúkraskrársafni eru skráðar rúmlega 403.000 færslur og 443.000 möppur í aðfangaskrá. Endurspegla þessar tölur vel umfang og mikilvægi deildarinnar í heildarstarfi Landspítala.
Persónuvernd er ávallt í forgrunni og starfið byggist á ströngum verklagsreglum og tæknilausnum sem tryggja örugga meðferð gagna. Á tímum örra tæknibreytinga er sjúkraskrárdeild í stöðugri þróun og tekur virkan þátt í framþróunarverkefnum. Afhendingarteymið hefur unnið með HUT að lausn í Heilsugátt, allt frá hugmynd til innleiðingar, sem kallast TÁS (tiltekt á sjúkraskrá) sem auðveldar tiltekt og afhendingu afrita úr sjúkraskrá. Önnur lausn innan Heilsugáttar sem starfsfólk deildarinnar hefur unnið að í samstarfi við HUT er vinnuborð sem heitir DRG eftirlit, þar er unnið að kóðun og frágangi gagna í bættu og auðveldara samstarfi. Auka slíkar nýjungar skilvirkni, bæta aðgengi að upplýsingum og styðja við betri þjónustu við sjúklinga og starfsfólk.




