Sigríður Árna Gísladóttir ráðin hjúkrunardeildarstjóri
11. ágúst 2026
Sigríður Árna Gísladóttir hefur verið ráðin hjúkrunardeildarstjóri á nýrri bráðamatsdeild Landspítala frá 17. ágúst 2026.

Sigríður hefur starfað á Landspítala frá árinu 2006. Lengst af starfaði hún á gjörgæsludeildinni í Fossvogi, fyrst sem hjúkrunarfræðingur og síðar sem aðstoðardeildarstjóri og deildarstjóri. Síðustu tíu mánuði hefur hún gegnt starfi deildarstjóra á taugalækningadeild. Sigríður hefur einnig sinnt kennslu við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands frá árinu 2018.
Sigríður lauk BS-prófi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands árið 2009 og meistaraprófi í gjörgæsluhjúkrun frá sama skóla árið 2018. Árið 2024 hlaut hún sérfræðiréttindi í gjörgæsluhjúkrun. Árið 2025 lauk hún jafnframt meistaraprófi í hjúkrunarstjórnun með áherslu á rekstur og mannauðsstjórnun.
„Ég er þakklát fyrir traustið og full tilhlökkunar fyrir komandi tímum. Bráðamatsdeildin mun spila stórt hlutverk í þeim breytingum sem fram undan eru í bráðaþjónustu spítalans, með teymisvinnu margra starfsstétta og samvinnu við aðrar deildir í fyrirrúmi. Það er einstakt tækifæri að taka þátt í stofnun nýrrar deildar og munum við hafa það að markmiði að veita framúrskarandi þjónustu fyrir okkar sjúklinga og stefnum að mikilli starfsánægju á fjölbreyttri og spennandi deild.“
