Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Sérhæfð ofbeldis- og áfallamóttaka verður opnuð innan Landspítala

11. febrúar 2026

Til stendur að opna sérhæfða ofbeldis- og áfallamóttöku innan Landspítala sem mun fá heitið Bryndísarhlíð, í höfuðið á Bryndísi Klöru sem lést í kjölfar hnífaárásar á menningarnótt árið 2024.

Móttakan verður staðsett í gamla Kennaraskólanum, við hlið Barnaspítala Hringsins, og verða þar undir einu þaki ofbeldismóttaka barna, heimilisofbeldisteymi Landspítala, áfallateymi fullorðinna og nýtt áfallateymi barna.

Í myndbandinu er rætt við Ölmu D. Möller, heilbrigðisráðherra, Guðrúnu Ingu Sívertsen, formann minningarsjóðs Bryndísar Klöru, Dögg Hauksdóttur, framkvæmdastjóra kvenna- og barnaþjónustu Landspítala, og Nönnu Briem, framkvæmdastjóra geðþjónustu Landspítala.