Sameiginlegt norrænt útboð til að tryggja afhendingaröryggi á krabbameinslyfjum
30. mars 2026
Landspítali tekur þátt í samnorrænu útboði ákveðinna krabbameinslyfja og er þetta í fyrsta skipti sem þessi lyfjaflokkur er boðinn út í sameiginlegu útboði Danmerkur, Noregs og Íslands. Tilgangurinn er að tryggja afhendingaröryggi lyfja sem verður æ erfiðara að útvega.

Tommy Juhl Nielsen frá Noregi, Flemming Sonne frá Danmörku og Hulda Harðardóttir, Landspítala.
Á undanförnum árum hefur lyfjaskortur verið vaxandi vandamál á heimsvísu. Samnorræn útboð eru mikilvæg leið til að tryggja að sjúklingar fái áfram nauðsynlega lyfjameðferð. Krabbameinslyf eru oft keypt inn í litlu magni þannig að með því að sameina þrjú minni markaðssvæði í eitt stærra skapast betri aðstæður fyrir stöðugra framboð og fleiri bjóðendur.
„Ísland er lítill markaður með færri en 400.000 íbúa. Þess vegna er mikilvægt fyrir okkur að vera með í samnorrænum útboðum. Reynslan sýnir að við, ásamt Noregi og Danmörku, verðum áhugaverðari markaður. Tilboðum til Íslands hefur fjölgað,“ segir Hulda Harðardóttir, deildarstjóri innkaupadeildar Landspítala.
Danmörk, Noregur og Ísland hafa undanfarin sjö ár haldið samnorræn útboð til að vinna gegn skorti á mikilvægum lyfjum með góðum árangri. Fyrirhugað er að í næsta samnorræna útboði bætist í hópinn eitt fylki í Svíþjóð og eitt fylki í Finnlandi. Sjá nánar hér.
