Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Runólfur snýr aftur til starfa

16. janúar 2025

Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala, mun snúa aftur til starfa á morgun, föstudaginn 17. janúar.

Runólfur hefur verið í veikindaleyfi undanfarnar vikur en hann gekkst undir aðgerð á spítalanum í byrjun desember. Aðgerðin gekk að óskum og hefur bataferlið gengið vel.

Að sögn Runólfs er hann ævinlega þakklátur því frábæra fólki sem starfar innan þvagfæraskurðþjónustu Landspítala. Það sinni störfum sínum jafnt af fagmennsku sem alúð.

Gunn­ar Ágúst Bein­teins­son, sem hefur gegnt starfi forstjóra í fjarveru Runólfs, mun aftur snúa til fyrri starfa sem fram­kvæmda­stjóri rekstr­ar og mannauðs.