Réttar- og öryggisgeðþjónusta Landspítala stækkuð
20. janúar 2026
Undanfarna mánuði hefur mikil vinna átt sér stað við að stækka og efla réttar- og öryggisgeðþjónustu Landspítala.

Verið er að gera upp legudeild sem getur hýst átta manns og er stefnt á að hún verði tekin í notkun í vor. Þar verður að finna ný húsgögn, einbýli með sérbaðherbergi og betri og bjartari aðstöðu en áður auk aðgengis að lokuðum garði. Samtímis þessu hefur verkefnahópur í geðþjónustunni unnið að endurskipulagningu meðferða og sótt sér þekkingu víða til að bæta þjónustuna. Næst stendur til að gera upp aðra átta legurýma deild á hæðinni fyrir ofan og verður hún hluti af réttar- og öryggisgeðþjónustunni.
Í meðfylgjandi myndbandi er rætt við Nönnu Briem, framkvæmdastjóra geðþjónustu Landspítala, Halldóru Friðgerði Víðisdóttur, forstöðuhjúkrunarfræðing geðþjónustu, og Eyrúnu Thorstensen, deildarstjóra á réttargeðdeild.
