Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

RESIL-Card: Sterkari hjartaþjónusta þegar mest reynir á

25. september 2026

Hvernig er hægt að tryggja að lífsnauðsynleg hjartaþjónusta haldist virk þegar óvænt áföll verða? COVID-19 faraldurinn sýndi að jafnvel öflug heilbrigðiskerfi geta brostið við skyndilegt og óvænt álag. Tafir á greiningu og meðferð sjúklinga, frestun aðgerða og skert aðgengi að hjartaþjónustu geta haft alvarlegar afleiðingar.

RESIL-Card er evrópskt samstarfsverkefni, styrkt af EU4Health, sem miðar að því að efla seiglu hjartaþjónustu og tryggja samfellu í þjónustu við óvænt áföll, svo sem faraldra, náttúruhamfarir eða aðra óvænta, alvarlega atburði. Kjarni verkefnisins er rafrænt sjálfsmatsverkfæri þar sem teymi í hjartaþjónustu fara yfir rúmlega 80 spurningar í sex þáttum; mannauð, þjónustu og innviðum, samskiptum og samvinnu, stjórnun og trausti, gagnasöfnun og aðgengi og notkun á lækningatækjum og vörum. Enginn kostnaður fylgir þátttöku.

Niðurstöðurnar birtast í hitakorti sem sýnir hvar styrkleikar liggja og hvaða þætti þarf að skoða frekar og laga. Þannig verður auðveldara að forgangsraða umbótum, móta aðgerðaáætlun og ræða viðbúnað á sameiginlegum grunni. Verkfærið er hugsað sem hluti af stöðugu umbótastarfi og má endurtaka reglulega til að fylgja breytingum eftir.

Á Íslandi og Landspítala hefur verkefnið verið leitt af Ingibjörgu Jónu Guðmundsdóttur, yfirlækni hjartaþræðinga, og Bylgju Kærnested, forstöðuhjúkrunarfræðingi hjartaþjónustunnar.

Góður undirbúningur forsenda öryggis

Íslenskar aðstæður fela í sér sérstakar áskoranir: fámennan sérhæfðan mannauð, mjög háa plássnýtingu sjúkrahússins, flæðisvanda og landfræðilegar áskoranir þar sem Ísland er eyja í Norður-Atlantshafi. RESIL Card endurspeglar sömu sýn og almannavarnir byggja á, að öryggi samfélagsins hvíli á góðum undirbúningi, skýrri samhæfingu og getu til að viðhalda mikilvægri þjónustu þegar óvænt áföll verða.

Á sama tíma koma einnig fram styrkleikar. Hjartaþjónustan hefur skýrar innlagnarleiðir, öflugt samstarf, reynslu af viðbragðsáætlunum og vaxandi notkun stafrænna lausna, meðal annars fjarvöktun og stuðningskerfi fyrir hjartasjúklinga.

RESIL-Card er til áminningar um að viðbúnaður og þekking er hluti af gæðum og fagmennsku. Með markvissu sjálfsmati, samtali og aðgerðaáætlun má styrkja hjartaþjónustuna fyrir sjúklinga, starfsfólk og samfélagið allt.