Reglur um framkvæmd heilbrigðisrannsókna uppfærðar
21. maí 2026
Nýlega var gefin út vísindastefna Landspítala til ársins 2030. Samhliða þeirri vinnu hafa reglur um framkvæmd heilbrigðisrannsókna á Landspítala verið í undirbúningi hjá skrifstofu forstjóra, forstöðumanni vísinda og yfirlögfræðingi spítalans.

Talið var nauðsynlegt að uppfæra reglurnar og skýra umgjörð rannsóknastarfs á spítalanum með það að markmiði að skapa vísindamönnum skýrara og fyrirsjáanlegra starfsumhverfi. Reglurnar voru unnar í nánu samstarfi við formann vísindaráðs og ráðið sjálft og hafa þær jafnframt verið yfirfarnar af framkvæmdastjórn spítalans.
Í reglunum er meðal annars fjallað um leyfisveitingar, aðgang að heilbrigðisgögnum, ábyrgð rannsakenda, samstarf við stoðdeildir, samninga, fjárumsýslu og aðstöðugjald vegna rannsókna sem fjármagnaðar eru með sértekjum eða ytri styrkjum, en því gjaldi er ætlað að styðja við uppbyggingu rannsóknaraðstöðu á Landspítala.
Gert er ráð fyrir að Magnús Gottfreðsson, forstöðumaður vísinda, kynni reglurnar á opnum fundi fljótlega.
Uppfærðar reglur um framkvæmd heilbrigðisrannsókna á Landspítala.
